Recently in Fljótlegt Category

Mos Burger

Mos Burger er einn af vinsælustu hamborgarakeðjunum í Japan og er japönsk að uppruna.  Til eru 1.500 útibú um gervallt Japan og mikið af þeim eru staðsett í Tokyo svo engin vandi ætti að vera að finna útibú nálægt þér.  Venjulega líta útibúin einhvern veginn svona út:  1, 2, 3.

First Kitchen

First Kitchen er einfaldlega besti japanski hamborgarastaðurinn/McDonalds-klónið sem ég hef farið á.  Það eru nokkrar keðjur sem að gera hamborgara en þessi staður er mest seðjandi ef manni langar í gæða þynnku- eða (lúxus) sjoppuborgara.

Tenka Sushi

Einn af mínum eftirlætis sushi stöðum meðan ég bjó í Japan var Tenka Sushi.  Þetta er keðja með fjölmörg útibú í Tokyo og besta af öllu er að þetta er mjög ódýr staður.  Og þrátt fyrir að vera mjög ódýr er hann jafnframt mjög góður.

Þetta er kaiten sushi staður, eða "færibanda-súshí" (eins og Ó Sushi/The Train staðurinn sem er í Iðu-húsinu við Lækjargötu).  Fyrir þá sem hafa ekki farið þangað þýðir það að þú situr við langt hringlaga afgreiðsluborð með kokkana innanborðs og maturinn rúllar framhjá þér á færibandi.  Diskarnir eru mismunandi litaðir og hver litur táknar ákveðið verð.  Þegar þú hefur borðað nóg eru diskarnir (og glösin) talin saman og þú greiðir fyrir matinn í afgreiðslunni við hurðina.

Eins og á flestum japönskum veitingastöðum er grænt te (ocha) og vatn (o-mizu) frítt.  Á borðinu er krani með heitu vatni fyrir te-ið en beðið er um vatnið eða aðra drykki sérstaklega.  Fyrir framan þig ætti að vera innplastaður matseðill svo að ef að þú sérð ekki hvað þig langar í á færibandinu gætirðu þurft að panta það frá starfsmanni.  Nb. að þá eru kaliforníurúllur ekkert voðalega vinsælt "item" þannig að ekki vera hissa ef að þú sérð ekki diska með rúllum fljóta framhjá, bara kalla á kokkinn fyrir framan þig eða staff í búðinni og panta.

Yoshinoya

Yoshinoya mætti kalla japanska svarið við McDonalds.  Þetta er skyndibitastaður sem er með milljón og sjö útibú um allt Japan.  Þú kemst ekki langt án þess að sjá glitta í skilti frá þeim, nánast sama hvar þú ert.

Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu.  Algjörlega ljúffengur matur og mjög ódýr.  Ein skál kostar frá 400 - 700 yen, eftir því hversu mikið þú vilt af hrísgrjónum og kjöti.  Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina.  Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.

Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við.  Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill ef að japanskan er ekki of sleip.  Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.

Ootoya

Ootoya er einn af bestu "fljótlegu" matsölustöðunum í Japan sem sérhæfa sig í japönskum heimamat.  Þjónustan er góð og hröð, maturinn æði og svo er þetta allt saman mjög ódýrt í þokkabót.  Þetta er mjög útbreidd keðja og hægt er að finna útibú í öllum helstu borgum Japan.  Í Tokyo eru ótal staðir og oft er hægt að finna þá nálægt helstu lestarstöðvunum.  Ef að það sést glitta í skiltið hér að neðan ertu nálægt.

Boðið er upp á "set" máltíðir sem innifela einn aðalrétt, hrísgrjón, mísó-súpu og smá skammt af súrsuðu grænmeti.  Aðalréttirnir eru af ýmsum toga: tempura, katsudon, hambaagu, tekkadon og fleira.  Ef þetta er of framandi eru þeir líka með mjög góða súrsætan kjúkling og svo eru þeir með rétti á matseðlinum sem breytast mánaðarlega svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Máltíðin kostar á bilinu 600 - 800 yen og er borgað í flestum tilfellum fyrirfram við diskinn.  Te og vatn er innifalið í verði en gosdrykkir og kaffi eru seldar gegn vægu verði.  Á sumum stöðum eru "all you can drink" fyrir sama verð og einn drykkur myndi kosta þig annars.

(4) á Shibuya korti eða við Takeshita Street í Harajuku og á milljón öðrum stöðum.

 

Ichiran

Uppáhaldsnúðlupleisið mitt er og hefur verið Ichiran sem er lítil keðja með rétt undir 20 útibú um gervallt Japan.  Ekkert voða stór player á núðlumarkaðinum en dúndurgóðar núðlur samt sem áður.

Það sem er í boði er "tonkotsu" tegundin er núðlum en það er tegund af súpu sem að núðlurnar baða sig í.  Aðrar týpur eru til dæmis "shoyu" (soja), "shio" (salt) og "miso" (mísó).  Tonkotsu soðið er að hluta til gert úr svínabeinum þannig að þetta er no-go fyrir grænmetisætur.  Meira um hinar ýmsu tegundir af japönskum ramen núðlum hér.

Staðurinn sker sig úr fyrir þær sakir að allir gestir fá einstaklingsbás og það er bannað tala hátt og hafa annan hávaða.  Þitt verk er að einbeita þér að núðlunum þar til að matnum er lokið, án allra truflana. 

Þegar komið er inn á staðinn er þar sjálfsali þar sem maður verður að kaupa sér miða sem maður skiptir fyrir matinn.  Bara einn hlutur er á matseðlinum en það er þeirra "patent" tonkotsu-núðlur.  Hægt er svo að kaupa sér aukalega egg, auka núðlur, auka kjöt, bjór og fleira í viðbót.

Í Shibuya útibúinu (sem ég mæli sérstaklega mikið með eftir veru á skemmtistöðum þar) tekur svo við ljósatafla þegar þú kemur inn á staðinn sem gefur til kynna hvaða sæti eru laus.  Þar sem er blátt tákn, þar er sæti laust.  Takkarnir eru í tveimur röðum eftir því í hvaða sætaröð það er, á hægri eða vinstri gangi.  Nb. stundum eru pör sem vilja sitja hlið við hlið á undan í röðinni og ef að stakt sæti losnar er ekki óalgengt að fólk hleypi manni fram fyrir sig.

-MYND-

Þegar þú hefur tekið þér sæti þá færðu réttan einskonar "tjekklista" þar sem þú getur hakað við hversu mikið af vorlauk, hvítlauk, chillisósu og svo framvegis á að vera í súpunni.  Einnig geturðu valið hversu vel soðnar núðlurnar eiga að vera og svo framvegis.  Þú munt mjög líklega fá eintak af tjekklistanum á japönsku en biddu starfsmanninn um leið um ensku útgáfuna með því að segja "eigo no menyu kudasai" eða einfaldlega "English menu, please".

-MYND-

 

http://www.ichiran.co.jp/pc/hp/tenpo/tenpo/shibuya.html