Kohmen Ramen

Kohmen er afar vinsæll ramen núðlustaður með nokkur útibú dreifð um stór-Tokyo svæðið. Þeir framreiða allar vinsælustu tegundirnar af ramen (sjá hér) og einnig tan tan men. Verðið er mjög svipað og á öðrum ramen stöðum í sama gæðaflokki eða 700-900 jen fyrir máltíðina.

Þegar komið er inn á staðinn tekur á móti þér þjónn sem vísar þér til sætis, ekki er þörf að kaupa matarmiða úr sjálfsala og gefa starfsmanni eins og á flestum svipuðum keðjum. Matseðillinn er vel myndskreyttur svo auðvelt er að velja sér það sem lítur bragðgott út. Þessi staður gerir allar þessar mismunandi tegundir af ramen núðlum mjög vel en fyrir þá sem finnst sterkur matur góður er tan tan men mjög bragðgott þar.
Auðveldast er að finna útibúið í Ikebukuro en til að komast þangað er farið út um Seibu East Exit á lestarstöðinni og beygt strax til hægri. Þar er labbað beint meðfram Seibu verslunarmiðstöðinni, framhjá Starbucks og Illums en staðurinn er beint við hliðina á Illums á hægri hönd.
- - - - -