Mos Burger
Mos Burger er einn af vinsælustu hamborgarakeðjunum í Japan og er japönsk að uppruna.
Hamborgararnir eru þannig frábrugðnir venjulegum hamborgurum að kjötið er blandað með lauk og kryddum svo að bragðið minnir einna helst á kjötbollur frekar en klassískan hamborgara. Aðalsmerki staðarins er eins konar salsa sósa sem að þeir setja á borgarana sem að er mjög ljúffeng. Verðið er mjög viðráðanlegt eða um 600-700 yen fyrir hamborgara með frönskum og gosdrykk.
Um gervallt Japan eru um 1.500 útibú, fjölmörg af þeim eru staðsett í Tokyo svo enginn vandi er að finna þennan stað á rölti um borgina. Hefðbundin útibú líta svona út: 1, 2, 3. Hér að neðan er staðsetning eins útibúanna í Shinjuku sem er stutt frá stöðinni.

Eins og með marga af japönsku stöðunum sem eru með vestrænan mat er oft á boðstólum svona "fusion" borgarar þar sem að japönsk matargerð er brædd við borgarann. Sem dæmi um það er Teriyaki hamborgarinn (sem er ógeðslega góður), djúpsteiktur rækjuborgari (alveg ágætur bara) og borgarar með hrísgrjónaklessur í staðinn fyrir brauð (ekkert spes).
Venjulegu hamborgararnir eru mjög góðir og ég mæli sérstaklega með Spicy Mos Cheese Burger.
Muna bara að biðja um matseðil á ensku ef valið vefst fyrir þér og afgreiðslumanneskjan talar enga ensku. Þú biður um það með því að segja eigo no menyu kudasai.

- - - - -
Flokkar:
Fljótlegt