[Fljótlegt] Kohmen Ramen

Kohmen er afar vinsæll ramen núðlustaður með nokkur útibú dreifð um stór-Tokyo svæðið. Þeir framreiða allar vinsælustu tegundirnar af ramen (sjá hér) og einnig tan tan men. Verðið er mjög svipað og á öðrum ramen stöðum í sama gæðaflokki eða 700-900 jen fyrir máltíðina.

Þegar komið er inn á staðinn tekur á móti þér þjónn sem vísar þér til sætis, ekki er þörf að kaupa matarmiða úr sjálfsala og gefa starfsmanni eins og á flestum svipuðum keðjum. Matseðillinn er vel myndskreyttur svo auðvelt er að velja sér það sem lítur bragðgott út. Þessi staður gerir allar þessar mismunandi tegundir af ramen núðlum mjög vel en fyrir þá sem finnst sterkur matur góður er tan tan men mjög bragðgott þar.
Auðveldast er að finna útibúið í Ikebukuro en til að komast þangað er farið út um Seibu East Exit á lestarstöðinni og beygt strax til hægri. Þar er labbað beint meðfram Seibu verslunarmiðstöðinni, framhjá Starbucks og Illums en staðurinn er beint við hliðina á Illums á hægri hönd.
[Fljótlegt] Seibee Ramen
Seibee er lítil keðja af ramen núðlustöðum með 2 útibú í Tokyo en annað þeirra er staðsett í Ueno. Það sem er á boðstólum er miso ramen í mismunandi útfærslum og er þessi staður einn af betri stöðunum í Tokyo fyrir þessa tegund af ramen núðlum.
Aðalsmerki staðarins eru þessir tveir réttir, annars vegar buta-miso (vinstra megin) þar sem í súpuna er bætt við steiktum baunaspírum og svínakjöti og hins vegar karanegi-miso (hægra megin) þar sem er bætt við sterkkrydduðum lauk og svínakjöti.Staðurinn er staðsettur í sama hverfi og stóri almenningsgarðurinn Ueno Koen og er því tilvalið að kíkja á þennan stað eftir að skoða t.d. dýragarðinn og listasöfnin sem hægt er að finna í garðinum.
Til að komast á staðinn er farið út um Shinobazu Exit á Ueno lestarstöðinni og farið yfir götuna í átt til hægri. Þar á horninu er risastór raftækjaverslun en farið er inn verslunargötuna vinstra megin við raftækjaverslunina og haldið áfram á beinni braut (gatan kvíslast einu sinni, þar halda beint áfram en ekki beygja) í um 5-10 mínútur þar til komið er að næstu stóru gatnamótum. Þar er ekki farið yfir götuna en beygt upp til hægri og þar er Seibee Ramen um 50 metra upp götuna. Sjá staðsetninguna hér.
[Kaffihús] , [Tónlist og DVD] Warzawa Records
Ein af betri plötubúðum Tokyo borgar, Warzawa Records er búin að vera starfrækt í mörg ár og býður upp á allt það helsta í indie músík, teknó, house, dubstep og öðrum geirum. Mikið úrval er af diskum en einnig eru þeir með heilmikið úrval af vínyl í hillunum meðfram veggjunum. Verðin eru mjög sambærileg öðrum verslunum á svæðinu en helsti kosturinn við þessa búð er yfirgripsmikið úrval af neðanjarðarmúsík sem finnst oft ekki í stærri keðjunum.
Á haustmánuðum 2008 setti verslunin upp kaffihús í sama húsnæði. Boðið er upp á góða létta rétti og eru þeir með einfaldan en góðan drykkjarmatseðil. Kaffi, te og gosdrykkir eru á bilinu 400-600 jen og réttirnir í kringum 1000 jen. Þar sem þetta er einnig plötubúð er spiluð mjög fjölbreytt tónlist, allt frá minimal teknói til hip hops.
Hægt er að sitja upp við gluggann og fylgjast með mannmergðinni og er þetta tilvalið kaffihús til að slappa af eftir verslunar- eða skoðunarferð í Shibuya. Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni og gengið yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks. Þar er farið hægra megin við bygginguna og labbað meðfram Seibu verslunarmiðstöðinni og beygt næstu götu inni til vinstri. Svo er gengið beinustu leið þar til gatan kvíslast, þar er farið hægri götuna nokkurra tugi metra þar til Warzawa Records birtist á þriðju hæð vinstra megin. Á fyrstu hæð er kráin Kirin City. Sjá betur á íslenskuðu korti hér.[Fljótlegt] Nakamoto Ramen
Fyrir ótrúlega góðar núðlur, sem eru örlítið í sterkari kantinum, er Nakamoto málið. Þetta er lítil keðja, aðeins með 7 útibú sem eru dreifð um stór-Tokyo svæðið. Ramen-ið sem þeir sérhæfa sig í er miso ramen sem þýðir að aðalhráefnið í núðlusúpunni er miso. Galdurinn við þeirra útgáfu er að þeir blanda miso-ið með sterkri chilli sósu sem að umturnar bragðinu svo að súpan bragðast lítið sem ekkert eins og miso.
Allir réttirnir á matseðlinum eru flokkaðir eftir styrkleika, allt frá einum loga upp í fimm loga. Fyrir þá sem að sem að finnst mátulega sterkur matur góður (t.d. indverskur) er gott að byrja á tveimur. Fyrir þá sem eru ekki mikið fyrir sterkan mat er einnig hægt að fá ramen sem að er ekki sterkt. Í hverjum mánuði kynna þeir nýjan rétt sem þeir framreiða í takmarkaðan tíma og er einnig vert að skoða þá. Sem dæmi má sjá á myndinni að ofan rétt sem þeir voru með sumarið 2008 þar sem súpan var bragðbætt með tómat allt toppað með steiktu grænmeti.Þessi staður eins og svo margir aðrir nota matarmiða sem þýðir að þú setur pening í sjálfsala, velur það sem þú vilt, færð svo miða með pöntuninni og afganginn. Miðann læturðu starfsmanninn fá og hann færir þér það sem þú pantaðir. Einnig er vert að minnast á að þessi staður er einstaklega vinsæll og oft er hálftíma til klukkutíma bið eftir sæti. Til að forðast bið er best að fara um eftirmiðdaginn eða seint á kvöldin.
Hentugasta útibúið (og það sem er auðveldast að finna) er í Shinjuku en það er í undir 10 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Hér er íslenskað kort til að komast þangað og svona lítur staðurinn út (nb. hann er í kjallara).
[Klúbbar] Air Tokyo
Air Tokyo er með betri klúbbum Tokyo og er staðsettur í Daikanyama, sem er í göngufjarlægð frá Shibuya. Tónlistin sem er spiluð þar er öll afbrigði af house/techno og svo stundum hip hop og drum'n'bass.
Barinn á staðnum er alveg súper-góður, allt barfólkið er þaulæft og er það með betri eiginleikum staðarins. Þegar maður er að borga 7-800 jen (~400 kr.) fyrir drykkinn (sem er svona örlítið í dýrari kantinum í Japan) að þá er alltaf gott að gæðin séu há.
Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér þar sem að þeir eru mjög strangir á skilríkjum. Jafnframt taka þeir ekki debetkort gild sem skilríki svo að það er best að passa sig og taka vegabréfið með.
Til að komast þangað ferðu út um West Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar þaðan yfir göngubrúnna í áttina að lestarteinunum (vinstri beygja þegar þú kemur upp á brúnna). Þegar komið er yfir götuna þarftu að labba mjóa götu meðfram lestarteinunum þar til þú kemur að klúbbnum á hægri hönd. Kort með leiðinni má finna hér.
[Tölvur og tækni] Super Potato Akihabara
Super Potato er ein besta búðin í Tokyo fyrir gamla tölvuleiki og leikjatengdan varning. Fyrir þá sem spiluðu mikið Nintendo eða hvaða leikjatölvu sem er í barnæsku er það hrein nauðsyn að kíkja þangað.
Verslunin selur flest allar gerðir leikjatölva (t.d. Nintendo, Sega, Neo-Geo) sem og leikina fyrir þær, allt frá þeim elstu upp í þá nýjustu. Allt mögulegt er á boðstólum, allt frá einstaklega sjaldgæfum leikjum sem fara á mörg hundruð þúsund jen stykkið og einnig sjaldséðar leikjatölvur eins og Virtual Boy sem var misheppnuð vél frá Nintendo frá árinu 1995.
Til að komast þangað er farið út um Akihabara Exit á Akihabara lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni). Þegar komið er út um hliðið er farið út um útganginn til vinstri og farið svo til hægri beint af augum, út mjóa götu að aðalgötunni sem sker hverfið í tvennt. Þar hinum megin við götuna er Club Sega spilatækjasalur. Farið er yfir götuna og inn mjógötuna vinstra megin við Sega salinn og svo tekin fyrsta beygjan til hægri. Eftir tæpa mínútu sést byggingin á hægri hönd en búðin er á 3. og 4. hæð hússins en þeir reka einnig spilatækjasal á 5. hæð.
[Tónleikastaðir] Blue Note Tokyo
Blue Note Tokyo er klúbbur og veitingastaður sem einhverjir ættu að kannast við en hann er nefndur eftir fræga djassplötufyrirtækinu Blue Note.
[Barir] Chandelier / Red Bar

Chandelier (eða Red Bar) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.
Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti. Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn. Ef kveikt er á lampanum fyrir utan hurðina er opið.
Einn aðalkosturinn við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (500 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.
Kort til að komast þangað finnurðu hér.
[Ódýrt] Elephant Cafe
Elephant Cafe er ágætis "asískur" veitingastaður staðsettur í Shibuya. Staðurinn er mjög stór, og því auðvelt að fá borð og hann er einnig stutt frá lestarstöðinni.
Matseldin sem er á boðstólum er blanda af víetnömskum, taílenskum, kínverskum blandað með hinu og þessu frá öðrum löndum innan Asíu. Maturinn er prýðilegur en það sem heillar mest við staðinn eru innréttingarnar (þar á meðal risa Búddalíkneski inni á miðjum staðnum) og andrúmsloftið þar inni.
Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni, og svo yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks. Þaðan er farið meðfram götunni til vinstri, yfir næstu gatnamót og örlítið upp brekkuna (framhjá verslunarmiðstöðinni 109) en þar er staðurinn fljótlega á hægri hönd á 5. hæð.
[Minjagripir] The Daiso
Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta bombað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.