Recently in Tónlist og DVD Category

Tower Records

Einn besti staðurinn til þess að kaupa tónlist er Tower Records í Shibuya.  Aðalbúð þessarar keðju er staðsett í um 4 mínútna labbi frá Shibuya lestarstöðinni.  Til að komast þangað ferðu út um Hachiko Exit og labbar yfir Hachiko torgið sem blasir við og að gatnamótunum.  Beint fyrir framan þig ættirðu að sjá Starbucks en hægra megin við Starbucks er gatan sem Tower er við.  Farðu yfir gatnamótin hægra megin og haltu áfram á beinni braut og innan nokkurra mínútna ætti Tower Records að blasa við á hægri hönd.

Verslunin er á mörgum hæðum og lítill klúbbur er í kjallaranum fyrir "in-store live".  Allra vinsælasta músíkin er á fyrstu hæð en svo eru hæðunum skipt upp eftir tónlistartegundum og uppruna (Japan/"International").  Þeir eiga mikið úrval af músík ef að þú ert að leita að einhverju sérstöku.  Einnig eru þeir með mikið úrval af DVD en örlítið í dýrari kantinum.

Dance Music Record

Ef að það er vínyll eða ný dans/hiphop músík sem þú leitar að er Dance Music Record málið.  Þetta er risastór plötubúð sem er staðsett í jaðrinum á recomura ("plötubær") hverfinu í Shibuya.  Búðin er á tveimur hæðum en fyrsta hæðin er undirlögð nýjum vínylútgáfum (hip hop/elektróník/djass og fleira) og eitthvað af diskum og jafnvel kassettum.  Efri hæðin er svo aðallega fyrir house og techno músík.

Í hverfinu nálægt DMR er nóg af plötubúðum enda er þar svokallað plötubúðahverfi.  Gott er að rölta um í grenndinni en góðar plötubúðir eru meðal annars Cisco (allavega fjórar búðir þar skiptar upp eftir tónlistargeirum), Guinness Records (sem Nujabes rekur) og Yellow Records sem er með gamlan vínyl.

Til að komast þangað er hægt að styðjast við kort af heimasíðu DMR sem ég íslenskaði og hægt er að finna hér.  Nb. að þar sem stendur "Löggan" stendur lítið hringlaga hús á horni sem er koban, eða lítil löggustöð.