Forsíða : Matur : Fljótlegt

First Kitchen

fk.jpgFirst Kitchen er ein af frægari skyndibitakeðjunum í Japan sem er japönsk að uppruna.  Þeir bjóða upp á nokkrar tegundir af hamborgurum en eru einnig með pasta, pizzur og aðra hluti á boðstólum.  Matseðill þeirra breytist eftir árstíðum og oft er hægt að fá sérkennilegan japanskan, en mjög ljúffengan, skyndibita þar.

Verðið er afar hefðbundið eða um 600-700 jen fyrir máltíð með drykk og frönskum inniföldum.  Útibúin eru mörg talsins en helst er að minnast á Shinjuku útibúið sem að er í stuttri vegalengd frá South Exit lestarstöðvarinnar.  Farið er út um South Exit, beygt til hægri um leið og labbað meðfram lestarstöðinni niður að næstu gatnamótum þar sem First Kitchen er hinum megin við götuna á horninu.

First Kitchen
東京都新宿区西新宿1-18-3
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 1-18-3 (Kort)

Á matseðlinum eru ekki bara borgarar heldur líka pizzur, pasta, súpur, pylsur og samlokur.  Pizzurnar eru mjög góðar og pulsurnar eru frekar spes en ágætt að prufa.  Myndi ekki koma nálægt pastainu samt, eini staðurinn til að fá gott pasta í Japan er á alvöru ítölskum veitingastöðum.  Myndir ekki trúa því hversu oft ég hef brennt mig á þessu, því er þetta undirstrikað.

Ég mæli sérstaklega með tvöfalda egg og beikon borgaranum og svo að taka með franskar með "garlic butter" kryddi en hægt er að velja milli 10 mismunandi krydd-tegunda á franskarnar.

Þessir staðir eru mjög algengir í Japan og þú átt eflaust eftir að rekast á einn eða tvo í t.d. Shibuya eða Shinjukuog því gef ég ekki upp kort.  Muna bara hvernig lógóið lítur út.  Hér eru svo dæmi um hvernig staðirnir líta út: 1, 2,3.

- - - - -

Flokkar: