Recently in Föt og skór Category

UNIQLO

UNIQLO er smásölurisi á fatamarkaðnum í Japan og staðurinn til að fá ódýr og þægileg föt.  Fyrirtækið með mestu veltu og gróða af öllum fatakeðjum og hefur verið í útbreiðslu til Bandaríkjanna og Evrópu.  En nóg um það.

Þetta er búðin sem reddaði mér oft þegar ég var fátækur námsmaður í Tokyo.  Þrátt fyrir að vera ódýr eru gæðin líka til staðar og mætti líkja þessu við ódýrari útgáfu af American Apparel, þ.e. frekar látlaus föt á góðu verði.

Bolir geta verið frá 1.000 jenum (~550 kr.), skyrtur og peysur frá 2.000 jenum (~1.100 kr.) og buxur frá 3.000 jenum (~1.650 kr.).

Óþarfi er að gefa upp staðsetningar því að þú átt eflaust eftir að rekast á allaveganna eina búð á vappi um Tokyo en þar eru 99 af 703 útibúum á landsvísu.  Bara muna eftir nafninu og lógóinu.

graniph

Graniph er alveg últra-sniðug og góð búð fyrir boli og aðrar léttar flíkur.  Þetta byrjaði sem voða lítið batterí sem einbeitti sér að því að gefa út boli með gæðahönnun en jafnframt ódýrt.  Eins og þetta er orðið núna reka þeir stóra netverslun sem og að vera með búðir, 51 stykki í Japan og sitthvora í Taipei og Singapore.

Hönnunin sem er prentuð á bolina er ýmist fengin frá starfsmönnum graniph eða úr samstarfsverkefnum með utanaðkomandi aðilum.  Einnig eru haldnar "design" keppnir á vegum graniph og fá sigurvegararnir bolina sína prentaða og dreift um allar búðir fyrirtækisins.

Skemmtilegt er að minnast á að oft er notuð týpógrafía eða letur í hönnun á bolina og geta þar oft leynst á milli smá engrish, eða "vitlaus" enska (sjá frekar hér).

Harajuku útibúið er að finna á korti superfuture fyrir Harajuku sem má finna hér.

 

A Bathing Ape

A Bathing Ape, eða Bape, er eitt þekktasta japanska fatamerkið bæði þar í landi og víðar.  Merkið var stofnað af Nigo, stílista og músíkant, í byrjun tíunda áratugarins.  Í byrjun var þetta pínulítið batterí í tískuhverfinu Harajuku en er núna orðið að alþjóðulegu fyrirbæri með verslanir í New York, Los Angeles, London og víða um Asíu.  Eftir auknar vinsældir fatalínunnar stækkaði Nigo við sig og bætti við lúxusbúðinni Bapexclusive, skóbúðinni Footsoldier, kvennamerkinu Apee, barnafötum undir merkinu Baby Milo, hárgreiðslustofunni Bape Cuts, kaffihúsinu Bape Café og fleira.

Fötin myndu flokkast undir "streetwear" en mikið af grafíkínni á fötunum sækir innblástur í Planet Of The Apes með tilheyrandi apahöfuðum.  Til þess að skoða hvað er í boði er hægt að skoða heimasíðu Bape eða jafnvel Officialbape sem að er blogg með tilkynningum um nýjar vörur og Bape-tengdar fréttir.

Aðalbúðin og jafnframt fyrsta búðin sem var opnuð er í Harajuku.  Langbesta leiðin til að finna nánast hvaða tískubúð sem er í miðbæ Tokyo er að miðast við bæjarkortin af heimasíðunni superfuture, en kortið fyrir Harajuku finnurðu hér.  Nb. ef að þú labbar niður Omote-sando götuna frá Harajuku station beygirðu til vinstri þegar þú kemur að Wendy's hamborgarastaðnum.  Búðin er í kjallara en ekki vel merkt.  Líttu eftir stórri hringlaga klukku hægra megin í götunni (ef að komið er frá Omote-sando) og þar er þetta í kjallara.  Fatamerkið Ice Cream er jafnframt á fyrstu hæð í sömu byggingu.

Til að komast í Bapexlusive búðina þarftu að koma þér til Aoyama.  Búðin er vel merkt á Aoyama kortið hjá superfuture sem þú finnur hér.