Recently in Öðruvísi Category

Sunnudagur í Harajuku

Ef að dvölin nær yfir allaveganna eina helgi er algjör nauðsyn að kíkja til Harajuku á einum sunnudeginum og taka rölt yfir til Yoyogi sem er næsti bær við.

Þegar farið er út um aðal-útgang (ekki Takeshita-dori Exit) skal halda út og beint af augum þar til komið er framhjá stöðvarbyggingunni og beygt svo til hægri. Þá ertu kominn á breiða göngubrú sem er yfir lestarteinana. Á þessari brú koma saman goth og lolita fólk (sjá frekar hér) sem og aðrir áhugasamir um framandi tísku, alla sunnudaga.  Mikið er um að útlendingar fari og taki myndir þarna þannig að ekki vera feiminn að biðja um að fá að taka ljósmyndir af fólkinu.

Ef haldið er svo áfram yfir brúnna kemurðu að inngangnum í Meiji hofið sem er einnig vert að kíkja á.

Eftir stopp í hofinu geturðu farið þaðan beint til Yoyogi Park.  Ef þú stendur fyrir framan innganginn að hofinu, beygirðu til vinstri og labbar meðfram hof-garðinum og tekur svo fyrstu beygju til hægri.  Þaðan er það bara bein leið til Yoyogi Park.  Snögglega á hægri hönd ættirðu að sjá meðlimi Tokyo Rockabilly Club að dansa við 60s japanska rockabilly músík en þeir koma saman allar helgar fyrir framan innganginn að Yoyogi Park.

Haltu áfram beinni leið eftir göngustígnum.  Fljótlega ættirðu að rekast á tónlistarfólk spilandi meðfram göngustígnum en mörg bönd setja upp litla tónleika á þessum göngustíg til að vekja athygli á sér.  Fleiri tónleika er hægt að sjá þegar farið er enn lengra eftir göngustígnum og yfir götuna á vinstri hönd.

Eftir labbið um garðinn er tilvalið að kíkja á Takeshita Street sem er göngugata með alls kyns búðum og veitingastöðum.  Á þeirri götu eru mjög fáir yfir tvítugu en mikið er um ódýrar glingurbúðir, útsölufatnað og ódýra staði.  Best er að koma sér aftur á lestarstöðina og labba framhjá aðal-útgangnum þar til þú kemur að Takeshita-dori Exit en þar ferðu yfir götuna og kemur að endanum á götunni.

Fyrir veitingstaði á þeirri götu get ég mælt með Ootoya sem að er í einni af fyrstu litlu götunum sem koma út frá Takeshita Street á vinstri hönd.  Svo ef þú ert ævintýraskapi get ég mælt með hinum ótrúlega súra "all-you-can-eat" pasta-stað Tabasa sem er með hip hop þema.  Hann liggur í kjallara alveg við endann á götunni hægra megin.