Recently in Tölvur og tækni Category

Super Potato Akihabara

Super Potato er ein besta búðin í Tokyo fyrir gamla tölvuleiki og leikjatengdan varning. Fyrir þá sem spiluðu mikið Nintendo eða hvaða leikjatölvu sem er í barnæsku er það hrein nauðsyn að kíkja þangað.

Verslunin selur allar gerðir leikjatölva (Nintendo, Sega, Neo-Geo, you-name-it..) og allt frá elstu upp í nýjustu leiki fyrir þær tölvur.  Ef það er eitthvað leikjatölvutengt frá hvaða tíma sem er finnurðu það þarna. Þeir eru með eintak af Virtual Boy leikjavélinni og gylltan Megaman 4 leik á 180.000 krónur íslenskar. Allt til semsagt.

Til að komast þangað þarftu að fara út um Akihabara Exit á Akihabara lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni). Þegar komið er út um hliðið labbarðu beint af augum og út mjóa götu að mjög breiðri aðalgötunni sem sker hverfið í tvennt. Þar hinum megin við götuna ættirðu að sjá Club Sega spilatækjasal. Labbaðu yfir götuna og farðu inn götuna hægra megin við Sega salinn og taktu svo fyrstu beygju til hægri. Svo labbarðu í smá stund og þá er þetta þér á hægri hönd (framhlið hússins lítur svona út) en búðin er á þriðju, fjórðu og fimmtu hæð hússins. Einnig er hægt að þekkja staðinn með því að hlusta eftir tölvuleikjamúsík sem að er spiluð úr hátalara utan á húsinu.  

Sony Building

Eitt helsta leiðandi aflið í tæknigeiranum í Japan, Sony, er með sýningarsali og búðarrými í sér-byggingu er nefnist Sony Building og er í Ginza hverfinu. Í þessari byggingu er hægt að sjá allt það nýjasta frá Sony og þar á meðal allskyns vörur sem ógerlegt er að fá í Evrópu.

BIC Camera

Til eru nokkrar risakeðjur af raftækjaverslunum á Tokyo-svæðinu en Bic Camera er ein sú stærsta.  Búðirnar selja allt frá ryksugum upp í 70" plasmasjónvörp og eru útibú í flestum af fjölförnustu bæjum Tokyo.  Í Shibuya eru til dæmis tvö útibú örstutt frá lestarstöðinni, annað við East Exit og hitt rétt hjá Hachiko Exit (sést á íslenskuðu korti hér).  Báðar búðir eru á mörgum hæðum með allt tæknidót sem hugurinn girnist.

Góða við Bic Camera er gott vöruúrval og oftast eru góð verð þar.  Svo er einnig stór plús punktakerfið hjá þeim en þeir gefa punkta við stór innkaup sem gera þér kleift að nota punktana við næstu innkaup.  Punktarnir eru mældir í prósentum af söluverði og hver punktur táknar eitt jen.  Segjum sem dæmi að þú kaupir stafræna myndavél á 50.000 jen og þú fáir 15% punkta við kaupin.  Punktarnir breytast 7.500 jen sem þú getur hæglega eytt í að kaupa auka minniskort fyrir vélina.  Mjög sniðugt.

Til þess að geta notast við punktakerfið hjá þeim verðuru að gerast meðlimur í Bic Camera kúnnaklúbb en það er gert bara á nokkrum mínútum við diskinn.