Recently in Karaoke Category
[Karaoke] Karaoke
Meðan maður er í Japan er mjög brýn nauðsyn að kíkja í karaoke, enda fæðingarstaður sportsins. Ég get eiginlega ekki lagt nógu mikla áherslu á hversu mikilvægt það er að kíkja allaveganna einu sinni. Bráðnauðsynlegt alveg.
Í stað þess að gera margar færslur um hina mismunandi karaoke staði sem er í boði verður þetta allt sameinað í eina færslu til hagræðingar.
Fyrst af öllu er vert að útskýra dálítið hvernig þetta fyrirbæri er í Japan. Staðlaða formið af karaoke stað er karaoke box sem að mætti einna helst líkja við hótel, fremur en karaoke bar eins og við þekkjum af Ölver til dæmis. Venjulegt karaoke box er oft á mörgum hæðum með allt frá 10 uppí 100 herbergi sem eru búin fullkomnum karaoke græjum, ljósagræjum (blacklight og diskóljós) og innanhússíma (til að panta mat og drykk).
Vinsælustu keðjurnar af karaoke stöðum eru Shidax, Karaoke-kan (カラオケ館) og Utahiroba (歌広場).
Þegar komið er inn á staðinn labbarðu vanalega beint inn í móttökurými með afgreiðsluborði þar sem karaoke herbergið er pantað. Fundið er herbergi sem passar fyrir fólksfjöldann og svo þarftu að ákveða hvort að eigi að vera innifalið "all you can drink" (á japönsku nomihoudai) eða ekki. Svo er ákveðinn tíminn, minnst er hægt að taka hálftíma og lengst er hægt að kaupa "alla nóttina" en það er um 5 tímar. Þegar búið er að ganga frá pöntuninni færðu míkrafóna og ert sendur uppá herbergið. Svo er það bara að syngja og panta sér drykk.
Vélin sjálf sem spilar karaoke lögin er mjög líklega öll á japönsku, þar á meðal fjarstýringin. Ekki örvænta þó, þegar þú hefur fundið þér lag sem þú vilt syngja (nb. "ensku" lögin eru oftast aftast í risamöppunum af lögum á borðinu) að þá seturðu inn númerið á laginu í fjarstýringuna og ýtir svo á græna takkann. Rauði takkinn stoppar svo lagið ef þú ert búinn að fá nóg.
Ef að síminn hringir eftir einhvern tíma er það líklegast verið að tilkynna ykkur að tíminn sé að verða útrunninn. Oftast er hringt tíu mínútum áður en tíminn rennur upp og látið vita. Þá er jafnframt hægt að framlengja tímann, vilji menn gera það. Þegar öllu er lokið er farið niður og aftur í móttökuna þar sem gert er upp.
Fyrrnefndar keðjur eru með útibú bókstaflega úti um allt og þess vegna gef ég ekki upp kort fyrir einn ákveðinn stað. Þess í stað eru hér dæmi um ytra útlit staðanna svo þú þekkir staðina í sjón.
Shidax: (1, 2, 3)
Karaoke-kan: (1, 2, 3)
Utahiroba: (1, 2, 3)