Yoshinoya
Yoshinoya mætti kalla japanska svarið við McDonalds. Þetta er skyndibitastaður sem er með milljón og sjö útibú um allt Japan. Þú kemst ekki langt án þess að sjá glitta í skilti frá þeim, nánast sama hvar þú ert.
Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu. Algjörlega ljúffengur matur og mjög ódýr. Ein skál kostar frá 400 - 700 yen, eftir því hversu mikið þú vilt af hrísgrjónum og kjöti. Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina. Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.
Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við. Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill ef að japanskan er ekki of sleip. Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.

- - - - -
Flokkar:
Fljótlegt