Forsíða :
Skemmtistaðir
:
Barir
Chandelier / Red Bar
Chandelier (eða Red Bar) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.
Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti. Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn.
Kostirnir við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (5-600 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.
Kort til að komast þangað finnurðu hér.
Staðurinn er opinn alla daga frá um 01:00 til morguns. Opnunartíminn er þó misjafn því eigandinn hefur mikla hentisemi um hvenær hann mætir og opnar. Staðurinn opnar oft ekki fyrr en seint og því best að kíkja þegar fer að líða vel á kvöldið.
Allir drykkir kosta 500 jen (~275 kr.) og eru mjög góðir miðað við verð enda góð hráefni notuð.
Til að komast þangað ferðu út um East Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar í örfáar mínútur þaðan en leiðin sést mjög vel á þessu korti.
- - - - -