Forsíða :
Skemmtistaðir
:
Klúbbar
Air Tokyo

Air Tokyo er með betri klúbbum Tokyo og er staðsettur í Daikanyama, sem er í göngufjarlægð frá Shibuya. Tónlistin sem er spiluð þar er öll afbrigði af house/techno og svo stundum hip hop og drum'n'bass.
Barinn á staðnum er stórgóður, allt barfólkið þar er þaulæft og er það með betri eiginleikum staðarins. Verðin á barnum eru örlítið í dýrari kantinum eða um 7-800 jen fyrir drykkinn en gæðin eru til staðar.
Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér þar sem að þeir eru mjög strangir á skilríkjum. Jafnframt taka þeir ekki debetkort gild sem skilríki svo að það er best að passa sig og taka vegabréfið með.
Til að komast þangað ferðu út um West Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar þaðan yfir göngubrúnna í áttina að lestarteinunum (vinstri beygja þegar þú kemur upp á brúnna). Þegar komið er yfir götuna þarftu að labba mjóa götu meðfram lestarteinunum þar til þú kemur að klúbbnum á hægri hönd. Kort með leiðinni má finna hér.
- - - - -