Forsíða : Verslanir : Minjagripir

Yebisu/Sapporo bjórsafnið

Sapporo er heimsfrægur framleiðandi á bjór og einna besti bjórinn sem hann framleiðir heitir Yebisu.  Í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Ebisu lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni eða Hibiya subway línunni) er að finna Yebisu bjórsafnið.

Inni á safninu er að finna sögu Sapporo fyrirtækisins myndskreytta og ýmsan fróðleik um bruggunarferlið.  Með því athyglisverðara á safninu eru auglýsingarnar gegnum árin en þar sést hvernig aldagömul menning Japana blandaðist hægt og þétt við vestræn gildi yfir 20. öldina.

Í enda sýningarinnar er svo smökkunarherbergi þar sem maður getur bragðað allar helstu bjórtegundir fyrirtækisins og einnig rauðvín og hvítvín.  Eftir smakkið er gott að renna inn í minjagripaverslunina en hún er staðsett við innganginn.

Til að komast þangað er auðveldast að fara til Ebisu á JR Yamanote línunni.  Inni á lestarstöðinni er farið út um Yebisu Skywalk útganginn í átt að Yebisu Garden Place.  Þegar komið er út um útganginn ferðu yfir götuna og tekur létta vinstri beygju og labbar fram hjá verslunarmiðstöðinni sem blasir við en bjórsafnið er í húsinu við hliðina.  Húsið er merkt Sapporo en inngangur er í kjallara.

Yebisu Beer Museum
東京都渋谷区恵比寿4-20-1
Shibuya-ku, Ebisu 4-20-1 (Kort)

Í þessu safni er farið í gegnum sögu Sapporo bjórverksmiðjunnar og sögu Yebisu bjórsins.  Hægt er að skoða alls kyns varning, flöskumiða í gegnum tíðina, magnaðar auglýsingar með hörkutólinu Sonny Chiba í aðalhlutverki og fleira og fleira.  Við endann á labbinu í gegnum safnið er svo smökkunarsalur þar sem hægt er að bragða helstu bjórtegundir sem eru framleiddar þarna gegn mjög vægu verði.  Einnig er hægt að smakka rauðvín og hvítvín sem sama fyrirtæki framleiðir.

Besti hlutinn er þó litla minjagripaverslunin við innganginn í safnið.  Þar er hægt að fá glás af varning tengt Yebisu eða Sapporo bjórnum, t.d. bjórhlaup, bjórsúkkulaði, gömul auglýsingaplaggöt, alls kyns flott bjórglös og fleira.  Ef þér finnst bjór góður er þetta staðurinn til að kíkja á einhvern eftirmiðdaginn.

Safnið er opið alla daga frá 10:00 - 17:00.  Til að komast þangað tekurðu Yebisu Skywalk útganginn (langur gangur með flötum rúllustigum) í átt að Yebisu Garden Place.  Þaðan ferðu yfir götuna og beygir til vinstri þegar þú kemur að Sapporo Beer Hall og heldur áfram í nokkrar mínútur þar til þú kemur að höfuðstöðvum Sapporo bjórs en safnið er þar á kjallarahæð.

- - - - -

Flokkar: