Forsíða :
Verslanir
:
Minjagripir
The Daiso
Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta rumpað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.
Þetta er stór keðja af afsláttarbúðum sem selja vörur sínar flest allar á 105 jen. Þar er hægt að fá allt milli himins og jarðar en mikið úrval er af alls kyns vörum sem eru tilvaldar í minjagripi svo sem matprjónar, ýmis búsáhöld og alls kyns matvara.
Þessar búðir eru staðsettar um allt Japan en ein af stærri verslunum innan stór-Tokyo svæðisins er staðsett í Harajuku, stutt frá lestarstöðinni. Gengið er út um Takeshita Street Exit, farið yfir götuna og aðeins niður Takeshita Street þar sem hún er á vinstri hönd.
Í Daiso er hægt að fá allt milli himins og jarðar og er langstærsti meirihluti varanna á einungis 100 jen (~55 kr.). Þar er hægt að kaupa glingur til að setja á síma, handklæði, leikföng, bindi, klósettbursta, eggjaskera, matprjóna, Hello Kitty dót og svo mætti lengi áfram telja.
Það er víst til tugir ef ekki hundruðir af þessum verslunum en mér finnst alltaf gaman að kíkja í útibúið í tískuhverfinu Harajuku því þar er búðin á nokkrum hæðum og nóg af mannlífi til að skoða í leiðinni.
Farið er út um Takeshita Exit á JR Harajuku lestarstöðinni og labbað beint af augum yfir götuna og niður Takeshita Street (sjá hér). Eftir eina til tvær mínútur blasir The Daiso við á vinstri hönd.
- - - - -