Forsíða :
Verslanir
:
Tölvur og tækni
Sony Building
Eitt helsta leiðandi aflið í tæknigeiranum í Japan, Sony, er með sýningarsali og búðarrými í sér-byggingu er nefnist Sony Building og er í Ginza hverfinu. Í þessari byggingu er hægt að sjá allt það nýjasta frá Sony og þar á meðal allskyns vörur sem ógerlegt er að fá í Evrópu.
Sony Building er á mörgum hæðum og skiptist í sýningarrými og verslunarsvæði. Á fyrstu fjórum hæðunum er hægt að skoða nýjungar á öllum sviðum: sjónvörp, myndavélar, skjávarpa, leikjatölvur, mp3 spilara, vélhunda og margt fleira. Á kjallarahæðinni er svo búðin þeirra sem kallast PLAZA en þar geturðu keypt allt mögulegt sem Sony framleiðir.
Til að komast þangað er auðveldast að fara út um Exit B9 á Ginza lestarstöðinni (Hibiya subway línan) en þá ættirðu að vera þarna beint fyrir framan húsið. Heimasíða Sony Building er einnig með gott kort hér.

- - - - -
Flokkar:
Tölvur og tækni