Forsíða : Matur : Ódýrt

Elephant Cafe

Elephant Cafe er ansi fínn og alls ekkert svo dýr veitingastaður staðsettur í Shibuya, rétt hjá lestarstöðinni. Staðurinn er frekar stór og skartar risa-Búddalíkneski í miðju veitingasvæðinu, ásamt miklu af asísku dóti upp með öllum veggjum -- enda staður með Asíuþema.

Mikið er af litlum réttum á matseðlinum svo best er að panta nóg af því sem kitlar bragðlaukana og svo deila með sér.  Bjór og aðrir drykkir eru frekar ódýrir. 

Hvar: Farið er út um Hachiko Exit á JR Shibuya lestarstöðinni. Labbaðu yfir torgið og yfir götuna á risagatnamótunum, beygðu svo til vinstri og haltu áfram. Framundan ættirðu að sjá götuna tvístrast og risaverslunarmiðstöðina 109. Farðu yfir götuna og vinstra megin við 109 -- í næsta húsi á hægri hönd er Elephant Cafe á 5. hæð. [ kort ]

- - - - -

Flokkar: