Forsíða :
Verslanir
:
Föt og skór
A Bathing Ape
A Bathing Ape, eða Bape, er eitt þekktasta japanska fatamerkið bæði þar í landi og víðar. Merkið var stofnað af Nigo, stílista og músíkant, í byrjun tíunda áratugarins. Í byrjun var þetta pínulítið batterí í tískuhverfinu Harajuku en er núna orðið að alþjóðulegu fyrirbæri með verslanir í New York, Los Angeles, London og víða um Asíu. Eftir auknar vinsældir fatalínunnar stækkaði Nigo við sig og bætti við lúxusbúðinni Bapexclusive, skóbúðinni Footsoldier, kvennamerkinu Apee, barnafötum undir merkinu Baby Milo, hárgreiðslustofunni Bape Cuts, kaffihúsinu Bape Café og fleira.
Fötin myndu flokkast undir "streetwear" en mikið af grafíkínni á fötunum sækir innblástur í Planet Of The Apes með tilheyrandi apahöfuðum. Til þess að skoða hvað er í boði er hægt að skoða heimasíðu Bape eða jafnvel Officialbape sem að er blogg með tilkynningum um nýjar vörur og Bape-tengdar fréttir.
Aðalbúðin og jafnframt fyrsta búðin sem var opnuð er í Harajuku. Langbesta leiðin til að finna nánast hvaða tískubúð sem er í miðbæ Tokyo er að miðast við bæjarkortin af heimasíðunni superfuture, en kortið fyrir Harajuku finnurðu hér. Nb. ef að þú labbar niður Omote-sando götuna frá Harajuku station beygirðu til vinstri þegar þú kemur að Wendy's hamborgarastaðnum. Búðin er í kjallara en ekki vel merkt. Líttu eftir stórri hringlaga klukku hægra megin í götunni (ef að komið er frá Omote-sando) og þar er þetta í kjallara. Fatamerkið Ice Cream er jafnframt á fyrstu hæð í sömu byggingu.
Til að komast í Bapexlusive búðina þarftu að koma þér til Aoyama. Búðin er vel merkt á Aoyama kortið hjá superfuture sem þú finnur hér.
- - - - -