August 2007 Archives
[Öðruvísi] Sunnudagur í Harajuku
Ef að dvölin nær yfir allaveganna eina helgi er algjör nauðsyn að kíkja til Harajuku á einum sunnudeginum og taka rölt yfir til Yoyogi sem er næsti bær við.
Þegar farið er út um aðal-útgang (ekki Takeshita-dori Exit) skal halda út og beint af augum þar til komið er framhjá stöðvarbyggingunni og beygt svo til hægri. Þá ertu kominn á breiða göngubrú sem er yfir lestarteinana. Á þessari brú koma saman goth og lolita fólk (sjá frekar hér) sem og aðrir áhugasamir um framandi tísku, alla sunnudaga. Mikið er um að útlendingar fari og taki myndir þarna þannig að ekki vera feiminn að biðja um að fá að taka ljósmyndir af fólkinu.
Ef haldið er svo áfram yfir brúnna kemurðu að inngangnum í Meiji hofið sem er einnig vert að kíkja á.
Eftir stopp í hofinu geturðu farið þaðan beint til Yoyogi Park. Ef þú stendur fyrir framan innganginn að hofinu, beygirðu til vinstri og labbar meðfram hof-garðinum og tekur svo fyrstu beygju til hægri. Þaðan er það bara bein leið til Yoyogi Park. Snögglega á hægri hönd ættirðu að sjá meðlimi Tokyo Rockabilly Club að dansa við 60s japanska rockabilly músík en þeir koma saman allar helgar fyrir framan innganginn að Yoyogi Park.
Haltu áfram beinni leið eftir göngustígnum. Fljótlega ættirðu að rekast á tónlistarfólk spilandi meðfram göngustígnum en mörg bönd setja upp litla tónleika á þessum göngustíg til að vekja athygli á sér. Fleiri tónleika er hægt að sjá þegar farið er enn lengra eftir göngustígnum og yfir götuna á vinstri hönd.
Eftir labbið um garðinn er tilvalið að kíkja á Takeshita Street sem er göngugata með alls kyns búðum og veitingastöðum. Á þeirri götu eru mjög fáir yfir tvítugu en mikið er um ódýrar glingurbúðir, útsölufatnað og ódýra staði. Best er að koma sér aftur á lestarstöðina og labba framhjá aðal-útgangnum þar til þú kemur að Takeshita-dori Exit en þar ferðu yfir götuna og kemur að endanum á götunni.
Fyrir veitingstaði á þeirri götu get ég mælt með Ootoya sem að er í einni af fyrstu litlu götunum sem koma út frá Takeshita Street á vinstri hönd. Svo ef þú ert ævintýraskapi get ég mælt með hinum ótrúlega súra "all-you-can-eat" pasta-stað Tabasa sem er með hip hop þema. Hann liggur í kjallara alveg við endann á götunni hægra megin.
[Hagnýtar upplýsingar] Siðir og venjur
Eins og þú gerir þér eflaust grein fyrir er japönsk menning töluvert frábrugðin þeirri íslensku og þess vegna er mjög mikilvægt að kynna sér ýmsa siði og venjur þar í landi áður en lagt er í hann. Eftirfarandi er (alls ekki tæmandi) listi yfir litla hluti sem er vert að athuga þegar maður er í Japan.
- Lærðu japönsku. Allavega "takk" (arigatou), "fyrirgefðu" (sumimasen) og aðra hagnýta frasa. Sjá t.d. hér.
- Hneigðu þig fyrir fólki en ekki um of. Smá lestur um hneigingar hérna. 15 gráður er passlegt með hendur niður með hliðum. Ekki að horfa niður í jörðina nema að þú sért að hneigja þig fyrir hefðarfólki og þá tekurðu alveg 30-35 gráður á þetta.
- Ef þú ert í viðskiptaerindum eða bara til að "networka", taktu með þér glás af nafnspjöldum. Mikil nafnspjaldamenning í Japan og það er alltaf gott að eiga nóg af spjöldum á sér.
- Gefðu gjafir. Ef þér er boðið í heimsókn eða ert að fara að hitta einhvern (nýjan) vin/kunningja er alltaf gott að taka með sér eitthvað lítið frá Íslandi.
- Aldrei fara inn á skónnum í mátunarklefa í verslunum. Aldrei.
- Það er ekkert voðalega dannað að sturta sojasósu yfir hrísgrjónin þín. Svipað og að kreista tómatsósu yfir allt hérna heima.
- Sake er ekki drukkið sem skot jafnvel þótt að það sé borið fram í litlum (skotlegum) glösum. Rétta leiðin til að drekka sake er í litlum sopum.
- Ekki vera feimin við að biðja um hníf og gaffal ef að reynist erfitt að borða með prjónum. Á japönsku biðurðu um hníf og gaffal svona: naifu to fooku kudasai.
Meira á leiðinni.
[Fljótlegt] Tenka Sushi
Tenka Sushi er keðja af sushi stöðum sem er með fjölmörg útibú í Tokyo. Mest heillandi við þessa staði er verðið sem er í ódýrari kantinum.
Þetta er kaiten sushi staður, eða "færibanda-súshí" (eins og sushi staðurinn á annarri hæð Iðu-hússins við Lækjargötu). Maður situr semsagt við langt hringlaga afgreiðsluborð með kokkana innanborðs og maturinn rúllar framhjá þér á færibandi. Diskarnir eru mismunandi litaðir og hver litur táknar ákveðið verð. Þegar þú hefur borðað fylli þína eru diskarnir (og glösin) talin saman og þú greiðir fyrir matinn í afgreiðslunni við hurðina.
Eins og á flestum japönskum veitingastöðum er grænt te (ocha) og vatn (o-mizu) frítt. Á borðinu er krani með heitu vatni fyrir teið en beðið er um vatnið og aðra drykki sérstaklega. Fyrir framan þig ætti að vera innplastaður matseðill svo að ef að þú sérð ekki hvað þig langar í á færibandinu pantar þú það frá starfsmanni.
Útibú þeirra í Shibuya er auðfundið, ef staðið er fyrir framan New South Exit lestarstöðvarinnar er haldið beint af augum út götuna, yfir litla brú að stórri götu. Þegar komið er að henni er beygt til vinstri og eftir nokkra tugi metra sést staðurinn á vinstri hönd.
[Hagnýtar upplýsingar] Lestarkerfið
Eitt það allra mikilvægasta sem maður getur gert til að undirbúa sig fyrir ferð til Tokyo er að læra á lestarkerfið. Almenningssamgöngur eru mjög góðar í Japan og stundvísi er í hávegum höfð. Helstu lestarlínur ganga á 2 - 10 mínútna fresti allan daginn en lestir ganga ekki á næturna milli 01:00 og 05:00, hvort sem það er yfir jörðu eða neðan.
Tvö helstu lestarkerfin heita JR (Japan Rail), sem er yfir jörðu, og Tokyo Metro, sem er neðanjarðarkerfið. JR er oft hentugri en neðanjarðarlestirnar en gott er að kunna á bæði kerfin.
JR
Kort fyrir lestarlínur JR á stór-Tokyo svæðinu er hægt að finna hér (pdf).
Í JR kerfinu er ein hringlína sem tengir öll helstu hverfin. Sú lína heitir Yamanote (græn) og er vert að kynna sér mjög vel. Þessi lína stoppar meðal annars í Shinjuku, Shibuya, Harajuku (frægt tískubúðahverfi), Ikebukuro, Ueno, Akihabara (raftækjahverfið) og Ebisu, allt staðir sem gaman er að kíkja til.
Önnur sniðug er Chuo línan (appelsínugul) en hún gengur þvert á Yamanote línuna. Með henni er hægt að stytta ferðalagið frá einum enda (Shinjuku) til hins í Yamanote hringnum (Tokyo Station). Einnig er hægt að taka hana út úr miðbænum eins og t.d. til Kichijoji eða Koenji sem eru lífleg úthverfi með nóg af skemmtilegum kaffihúsum og "2nd hand" búðum.
Tokyo Metro
Kort af neðanjarðarkerfinu finnurðu hér.
Neðanjarðarkerfið er mjög hentugt þrátt fyrir að lestirnar ganga aðeins sjaldnar. Oftast er þó ekki meira en 15 mínútna bið eftir lest. Með þessu kerfi geturðu komist til Aoyama (tískubúðahverfi), Asakusa, Roppongi, Kōrakuen og fleiri athyglisverðra staða.
Helstu línurnar sem ég notaði mest eru Ginza (gul) og Hibiya (grá). Með Ginza línunni kemst maður meðal annars til Asakusa (staður eins frægasta hof Japans, Senso-ji) og Aoyama (tískuhverfi). Með Hibiya línunni kemst maður meðal annars til Roppongi þar sem Roppongi Hills er til húsa og kös af veitinga- og skemmtistöðum.
Aðrar lestir
Fyrir aðrar lestir (önnur kerfi) á stór-Tokyo svæðinu er hægt að nálgast upplýsingar hér.
[Fínt] Ninja Akasaka
Ninja Akasaka er einn af fjölmörgum þema-veitingastöðum í Tokyo en einn af þeim allra bestu. Eins og nafnið gefur til kynna er þemað á þessum stað ninjur, leynimorðingjar og njósnarar hið forna.Staðurinn er allur hinn flottasti og innréttaður eins og lítið þorp innan í helli. Þegar komið er inn er þér boðið að taka ninja æfingakúrs sem er eiginlega bara aðeins rölt um forrými staðarins sem endar hjá hengibrú sem leiðir þig inn að aðalveitingasvæðinu. Borðin eru í litlum herbergjum eða húsum sem eru misstór.
A la carte seðillinn er einungis á japönsku á heimasíðu staðarins en samsetta matseðlana er hægt að sjá hér.
Nauðsynlegt er að panta borð í tíma því það er oft uppbókað hjá þeim. Síminn hjá þeim er 03-5157-3936 (+81 3-5157-3936 utan Japan).
Til þess að komast þangað þarf að taka Subway-ið til Akaska-mitsuke og þá annað hvort Ginza línuna eða Marunouchi línuna. Auðveldast er að koma sér til Shinjuku með JR lestarkerfinu (lestarkort hér) og skipta þar yfir á Marunouchi subway línuna en þaðan eru það 5 stopp. Til þess að komast þaðan frá lestarstöðinni er kort á ensku á forsíðu heimasíðu veitingastaðarins.
[Fljótlegt] Yoshinoya
Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu. Mjög ljúffengur matur og jafnframt mjög ódýr en ein skál kostar frá 400 - 700 yen eftir stærð og gerð. Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina. Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.
Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við. Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill. Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.
[Föt og skór] A Bathing Ape
A Bathing Ape, eða Bape, er eitt þekktasta japanska fatamerkið bæði þar í landi og víðar. Merkið var stofnað af Nigo, stílista og músíkant, í byrjun tíunda áratugarins. Í byrjun var þetta pínulítið batterí í tískuhverfinu Harajuku en er núna orðið að alþjóðulegu fyrirbæri með verslanir í New York, Los Angeles, London og víða um Asíu. Eftir auknar vinsældir fatalínunnar stækkaði Nigo við sig og bætti við lúxusbúðinni Bapexclusive, skóbúðinni Footsoldier, kvennamerkinu Apee, barnafötum undir merkinu Baby Milo, hárgreiðslustofunni Bape Cuts, kaffihúsinu Bape Café og fleira.
Fötin myndu flokkast undir "streetwear" en mikið af grafíkínni á fötunum sækir innblástur í Planet Of The Apes. Til þess að skoða hvað er í boði er hægt að skoða heimasíðu Bape.
Aðalbúðin og jafnframt fyrsta búðin sem var opnuð er í Harajuku og er staðsett í götunni bakvið Omotesando Hills verslunarmiðstöðina um það bil fyrir miðju þeirrar byggingar.
[Klúbbar] Womb
Womb er einn af stærstu teknó-klúbbunum í Tokyo, ef ekki sá stærsti. Staðurinn skiptist í tvennt, loungesvæðið sem heitir Obi og svo klúbbinn sjálfan. Þegar komið er inn fyrir miðasöluna eru raðir með skápum sem hægt er að leigja fyrir töskur og fatnað. Vanalega kostar leigan 300 jen sem dugar þér til lokunar staðarins.
Staðurinn er með eitt dansgólf sem skartar stærstu diskókúlu í Tokyo. Við dansgólfið er bar en svo eru tveir barir í viðbót á hæðunum tveim fyrir ofan dansgólfið. Frá lounge-svæðunum við barina tvo er hægt svo að líta yfir dansgólfið í smá næði frá pumpandi teknóinu. Í takt við flesta aðra staði af þessari stærðargráðu kostar venjulega frá 2.500 - 4.000 jen inn á kvöld og fylgja oftast 1-2 drykkjarmiðar með.
Smella hér til að fá lista yfir hverjir eru að spila í þessum mánuði.
Teknósnúðarnir Takkyu Ishino (úr teknópoppsveitinni Denki Groove) og Ken Ishii spila þar oft og Jeff Mills einnig en þegar hann kemur þá spilar hann jafnvel marga daga í röð. Þrátt fyrir að vera þekktur helst sem teknó-klúbbur eru mánaðarleg drum'n'bass kvöld þar og oft house kvöld einnig.
Til að komast þangað geturðu stuðst við kort superfuture fyrir Shibuya hér (Womb er neðarlega til vinstri).
[Fljótlegt] Ootoya

Ootoya er einn af bestu "fljótlegu" matsölustöðunum í Japan sem sérhæfa sig í japönskum heimamat. Þjónustan er góð og hröð, maturinn æði og svo er þetta allt saman mjög ódýrt í þokkabót. Þetta er mjög útbreidd keðja og hægt er að finna útibú í öllum helstu borgum Japan. Í Tokyo eru ótal staðir og oft er hægt að finna þá nálægt helstu lestarstöðvunum. Ef að það sést glitta í skiltið hér að neðan ertu nálægt.
Boðið er upp á "set" máltíðir sem innifela einn aðalrétt, hrísgrjón, mísó-súpu og smá skammt af súrsuðu grænmeti. Aðalréttirnir eru af ýmsum toga: tempura, katsudon, hambaagu, tekkadon og fleira. Ef þetta er of framandi eru þeir líka með mjög góða súrsætan kjúkling og svo eru þeir með rétti á matseðlinum sem breytast mánaðarlega svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.
Máltíðin kostar á bilinu 600 - 800 jen og á flestum stöðum er borgað fyrirfram fyrir matinn og svo er manni vísað til sætis. Te og vatn er innifalið í verði en gosdrykkir og kaffi eru seldar gegn vægu verði. Á sumum stöðum er "drink bar" fyrir sama verð og einn drykkur myndi kosta þig annars.
Þessir staðir eru vanalega við allar stærri lestarstöðvar svo best er bara að hafa augun opin á gangi um borgina. Sem dæmi um einn stað er staður í Shibuya í mjög stuttri göngufjarlægð frá East Exit. Ganga yfir gatnamótin í átt að Resona bankanum og þar aðeins lengra upp brekkuna er staður á 2. hæð á hægri hönd. Sjá kort hér.
[Klúbbar] The Room
Þessi staður er oft dreginn upp þegar talað er um djass og "nu-jazz" tónlistarmenninguna í Japan. Nu-jazz tónlistarmenn eins og Kyoto Jazz Massive, Quasimode, Shuya Okino og fleiri eru með reglulega viðburði þar. Hip-hop er líka spilað þar af og til, sem og house, diskó og stundum techno. Hip-hop plötuútgáfan Jazzy Sport heldur einnig oft viðburði þarna.
Þessi staður er með einn af betri börum borgarinnar. Sem merki um það færðu oft gerða fyrir þig fullkomna klakakúlu í glasið fyrir kokkteilinn þinn sem að barþjónninn mótar með meitli. Verðin eru mjög sambærileg á öðrum klúbbum eða um 7-800 jen fyrir drykkinn. Mæli sérstaklega með drykknum "Kyoto" sem er innanhúsdrykkur en hann inniheldur sake, lime safa og fjólubláan sítrónulíkjör.
[Fljótlegt] Ichiran Ramen
Ichiran er lítil keðja af ramen stöðum með rétt undir 20 útibú um gervallt Japan.
Það sem er í boði er tonkotsu tegundin er núðlum en það er tegund af súpu sem að núðlurnar baða sig í. Aðrar týpur eru til dæmis shoyu (soja), shio (salt) og miso (mísó). Tonkotsu soðið er að hluta til gert úr svínabeinum þannig að þetta hentar augljóslega ekki fyrir grænmetisætur. Meira um hinar ýmsu tegundir af japönskum ramen núðlum hér.
Staðurinn sker sig úr fyrir þær sakir að allir gestir fá einstaklingsbás og það er bannað tala hátt og hafa annan hávaða. Þitt verk er að einbeita þér að núðlunum þar til að matnum er lokið, án allra truflana.
Þegar komið er inn á staðinn er þar sjálfsali þar sem maður verður að kaupa sér matarmiða sem maður skiptir fyrir matinn. Bara einn hlutur er á matseðlinum en það er þeirra "patent" tonkotsu-núðlur. Hægt er svo að kaupa sér aukalega egg, auka núðlur, auka kjöt, bjór og fleira meðlæti.
Þegar komið er inn á staðinn er ljósatafla sem gefur til kynna hvaða sæti eru laus. Ef að það sést blátt tákn á töflunni þá er þar sæti laust. Takkarnir eru í tveimur röðum eftir því í hvaða sætaröð það er, á hægri eða vinstri gangi. Nb. stundum eru pör sem vilja sitja hlið við hlið á undan í röðinni og ef að stakt sæti losnar er ekki óalgengt að fólk hleypi manni fram fyrir sig.
Þegar þú hefur tekið þér sæti þá færðu réttan einskonar "tjekklista" þar sem þú getur hakað við hversu mikið af vorlauk, hvítlauk, chillisósu og svo framvegis á að vera í súpunni. Einnig geturðu valið hversu vel soðnar núðlurnar eiga að vera og svo framvegis. Þú munt mjög líklega fá eintak af tjekklistanum á japönsku en biddu starfsmanninn um leið um ensku útgáfuna með því að segja "eigo no menyu kudasai" eða einfaldlega "English menu, please".

Útibú þeirra í Shibuya er opið allan sólarhringinn og því mjög hentugt eftir dvöl á skemmtistöðum í hverfinu. Til að komast þangað frá Hachiko Exit lestarstöðvarinnar er farið inn götuna hægra megin við Starbucks hinum megin við stóru gatnamótin. Þar rétt áður en komið er að Tower Records er útibúið í kjallara þar sem veitingastaðurinn Matsuya er á fyrstu hæð (gult skilti).