Air Tokyo

Air Tokyo er með betri klúbbum Tokyo og er staðsettur í Daikanyama, sem er í göngufjarlægð frá Shibuya.  Tónlistin sem er spiluð þar er öll afbrigði af house/techno og svo stundum hip hop og drum'n'bass.

Barinn á staðnum er alveg súper-góður, allt barfólkið er þaulæft og er það með betri eiginleikum staðarins.  Þegar maður er að borga 7-800 jen (~400 kr.) fyrir drykkinn (sem er svona örlítið í dýrari kantinum í Japan) að þá er alltaf gott að gæðin séu há.

Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér þar sem að þeir eru mjög strangir á skilríkjum.  Jafnframt taka þeir ekki debetkort gild sem skilríki svo að það er best að passa sig og taka vegabréfið með.

Til að komast þangað ferðu út um West Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar þaðan yfir göngubrúnna í áttina að lestarteinunum (vinstri beygja þegar þú kemur upp á brúnna).  Þegar komið er yfir götuna þarftu að labba mjóa götu meðfram lestarteinunum þar til þú kemur að klúbbnum á hægri hönd.  Kort með leiðinni má finna hér.

Super Potato Akihabara

Super Potato er ein besta búðin í Tokyo fyrir gamla tölvuleiki og leikjatengdan varning. Fyrir þá sem spiluðu mikið Nintendo eða hvaða leikjatölvu sem er í barnæsku er það hrein nauðsyn að kíkja þangað.

Verslunin selur allar gerðir leikjatölva (Nintendo, Sega, Neo-Geo, you-name-it..) og allt frá elstu upp í nýjustu leiki fyrir þær tölvur.  Ef það er eitthvað leikjatölvutengt frá hvaða tíma sem er finnurðu það þarna. Þeir eru með eintak af Virtual Boy leikjavélinni og gylltan Megaman 4 leik á 180.000 krónur íslenskar. Allt til semsagt.

Til að komast þangað þarftu að fara út um Akihabara Exit á Akihabara lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni). Þegar komið er út um hliðið labbarðu beint af augum og út mjóa götu að mjög breiðri aðalgötunni sem sker hverfið í tvennt. Þar hinum megin við götuna ættirðu að sjá Club Sega spilatækjasal. Labbaðu yfir götuna og farðu inn götuna hægra megin við Sega salinn og taktu svo fyrstu beygju til hægri. Svo labbarðu í smá stund og þá er þetta þér á hægri hönd (framhlið hússins lítur svona út) en búðin er á þriðju, fjórðu og fimmtu hæð hússins. Einnig er hægt að þekkja staðinn með því að hlusta eftir tölvuleikjamúsík sem að er spiluð úr hátalara utan á húsinu.  

Blue Note Tokyo

Blue Note Tokyo er klúbbur og veitingastaður sem einhverjir ættu að kannast við en hann er nefndur eftir fræga djassplötufyrirtækinu Blue Note.

Chandelier (eða Red Bar) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.

Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti.  Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn.

Kostirnir við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (5-600 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.

Kort til að komast þangað finnurðu hér.

Elephant Cafe

Elephant Cafe er ansi fínn og alls ekkert svo dýr veitingastaður staðsettur í Shibuya, rétt hjá lestarstöðinni. Staðurinn er frekar stór og skartar risa-Búddalíkneski í miðju veitingasvæðinu, ásamt miklu af asísku dóti upp með öllum veggjum -- enda staður með Asíuþema.

The Daiso

Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta bombað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.

Mos Burger

Mos Burger er einn af vinsælustu hamborgarakeðjunum í Japan og er japönsk að uppruna.  Til eru 1.500 útibú um gervallt Japan og mikið af þeim eru staðsett í Tokyo svo engin vandi ætti að vera að finna útibú nálægt þér.  Venjulega líta útibúin einhvern veginn svona út:  1, 2, 3.

First Kitchen

First Kitchen er einfaldlega besti japanski hamborgarastaðurinn/McDonalds-klónið sem ég hef farið á.  Það eru nokkrar keðjur sem að gera hamborgara en þessi staður er mest seðjandi ef manni langar í gæða þynnku- eða (lúxus) sjoppuborgara.

Sony Building

Eitt helsta leiðandi aflið í tæknigeiranum í Japan, Sony, er með sýningarsali og búðarrými í sér-byggingu er nefnist Sony Building og er í Ginza hverfinu. Í þessari byggingu er hægt að sjá allt það nýjasta frá Sony og þar á meðal allskyns vörur sem ógerlegt er að fá í Evrópu.

Yebisu bjórsafnið

Sapporo er heimsfrægur framleiðandi á bjór og einna besti bjórinn sem hann framleiðir heitir Yebisu.  Í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Ebisu lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni eða Hibiya subway línunni) er að finna Yebisu bjórsafnið.

Inni á safninu er að finna sögu Sapporo fyrirtækisins myndskreytta og ýmsan fróðleik um bruggunarferlið.  Með því athyglisverðara á safninu eru auglýsingarnar gegnum árin en þar sést hvernig aldagömul menning Japana blandaðist hægt og þétt við vestræn gildi yfir 20. öldina.

Í enda sýningarinnar er svo smökkunarherbergi þar sem maður getur bragðað allar helstu bjórtegundir fyrirtækisins og einnig rauðvín og hvítvín.  Eftir smakkið er gott að renna inn í minjagripaverslunina en hún er staðsett við innganginn.

Til að komast þangað er auðveldast að fara til Ebisu á JR Yamanote línunni.  Inni á lestarstöðinni er farið út um Yebisu Skywalk útganginn í átt að Yebisu Garden Place.  Þegar komið er út um útganginn ferðu yfir götuna og tekur létta vinstri beygju og labbar fram hjá verslunarmiðstöðinni sem blasir við en bjórsafnið er í húsinu við hliðina.  Húsið er merkt Sapporo en inngangur er í kjallara.  Gróf staðsetning hússins miðað við lestarstöðina sést hér.