Minjagripir: September 2007 Archives
[Minjagripir] The Daiso
Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta rumpað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.
Þetta er stór keðja af afsláttarbúðum sem selja vörur sínar flest allar á 105 jen. Þar er hægt að fá allt milli himins og jarðar en mikið úrval er af alls kyns vörum sem eru tilvaldar í minjagripi svo sem matprjónar, ýmis búsáhöld og alls kyns matvara.
Þessar búðir eru staðsettar um allt Japan en ein af stærri verslunum innan stór-Tokyo svæðisins er staðsett í Harajuku, stutt frá lestarstöðinni. Gengið er út um Takeshita Street Exit, farið yfir götuna og aðeins niður Takeshita Street þar sem hún er á vinstri hönd.
[Minjagripir] Yebisu/Sapporo bjórsafnið
Inni á safninu er að finna sögu Sapporo fyrirtækisins myndskreytta og ýmsan fróðleik um bruggunarferlið. Með því athyglisverðara á safninu eru auglýsingarnar gegnum árin en þar sést hvernig aldagömul menning Japana blandaðist hægt og þétt við vestræn gildi yfir 20. öldina.
Í enda sýningarinnar er svo smökkunarherbergi þar sem maður getur bragðað allar helstu bjórtegundir fyrirtækisins og einnig rauðvín og hvítvín. Eftir smakkið er gott að renna inn í minjagripaverslunina en hún er staðsett við innganginn.
Til að komast þangað er auðveldast að fara til Ebisu á JR Yamanote línunni. Inni á lestarstöðinni er farið út um Yebisu Skywalk útganginn í átt að Yebisu Garden Place. Þegar komið er út um útganginn ferðu yfir götuna og tekur létta vinstri beygju og labbar fram hjá verslunarmiðstöðinni sem blasir við en bjórsafnið er í húsinu við hliðina. Húsið er merkt Sapporo en inngangur er í kjallara.