Klúbbar: September 2007 Archives

Air Tokyo

Air Tokyo er með betri klúbbum Tokyo og er staðsettur í Daikanyama, sem er í göngufjarlægð frá Shibuya.  Tónlistin sem er spiluð þar er öll afbrigði af house/techno og svo stundum hip hop og drum'n'bass.

Barinn á staðnum er alveg súper-góður, allt barfólkið er þaulæft og er það með betri eiginleikum staðarins.  Þegar maður er að borga 7-800 jen (~400 kr.) fyrir drykkinn (sem er svona örlítið í dýrari kantinum í Japan) að þá er alltaf gott að gæðin séu há.

Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér þar sem að þeir eru mjög strangir á skilríkjum.  Jafnframt taka þeir ekki debetkort gild sem skilríki svo að það er best að passa sig og taka vegabréfið með.

Til að komast þangað ferðu út um West Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar þaðan yfir göngubrúnna í áttina að lestarteinunum (vinstri beygja þegar þú kemur upp á brúnna).  Þegar komið er yfir götuna þarftu að labba mjóa götu meðfram lestarteinunum þar til þú kemur að klúbbnum á hægri hönd.  Kort með leiðinni má finna hér.

Club Module

Club Module er einn af betri techno og house klúbbum í Tokyo.  Þrátt fyrir að þar spila ekki oft stór alþjóðleg nöfn eru oft mjög góð partí haldin þar og þetta er jafnframt mjög góður staður til að heyra hvað er í gangi í techno/house senunni í Japan.  Til að skoða hvað er í gangi þennan mánuðinn má skoða heimasíðu klúbbsins hérna.

Kostnaðurinn er frá 2.000 jenum (~1.100 kr.) og allt upp í 4.000 jen (~2.200 kr.) ef að eitthvað voða sérstakt er að gerast og vanalega fylgir einn drykkur með miðanum.  Í þessu samhengi er vert að minnast á að það er ódýrara inn ef að þú kemur með flyerinn fyrir kvöldið með þér og þá eru vanalega 500 jen slegin af.  Hægt er að rekast á flyera fyrir alls kyns kvöld í Dance Music Record plötubúðinni og nærliggjandi búðum í plötubúðahverfinu.

Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni og haldið yfir götuna yfir stóru gatnamótin (þvert á gatnamótin í átt að Starbucks).  Þegar komið er yfir götuna er beygt til vinstri og haldið áfram eftir gangstéttinni.  Bráðum ætti 109 að blasa við (risa "department store") en bara halda ótrautt áfram meðfram sama göngustíg en hann tekur sveig og heldur upp götuna hægra megin við 109.  Halda áfram þar til gatan tvístrast, taka þá hægri beygju og eftir örstutt labb ætti Module að blasa við á hægri hönd.  Staðurinn er í kjallara en ljósaskilti er á jarðhæð til að vísa á staðinn.

Til viðbótar við þessa lýsingu er hægt að styðjast við kort af heimasíðu Club Module, íslenskað af mér, sem þú finnur hér.