Klúbbar: August 2007 Archives

Yellow

Space Lab Yellow, eða bara Yellow, er einn besti næturklúbburinn í Tokyo.  Ótalmargir frægir plötusnúðar og bönd hafa spilað þar en þetta er mjög góður staður fyrir ýmist house, techno, drum'n'bass eða hip-hop kvöld.  Meðal þeirra sem spila þar á næstunni (sep-okt 2007) eru Gilles Peterson, Danny Krivit, Ron Trent, Francois K., Fantastic Plastic Machine, Superpitcher og fleiri.  Mjög tilkomumikill listi yfir þá sem hafa spilað þar finnurðu hér.

Staðurinn er staðsettur í Nishi-Azabu sem er stutt frá djammhverfinu Roppongi.  Auðveldast er að koma sér til Nishi-Azabu með að kíkja fyrst til Roppongi og rölta þaðan en það tekur um 15-20 mínútur.  Hægt er að sameina þetta með viðdvöl í Roppongi hverfinu en það er svona "útlendingahverfi" með nóg af írskum/mexíkóskum/líbönskum/ogsvoframvegis börum.

Gott kort er að finna hér (Yellow er á C-3) og best er að fara út á Exit 2 á Roppongi Station (Hibiya línan) og rölta þaðan eftir Roppongi-dori götunni.

Club Womb

Womb er einn af stærstu teknó-klúbbunum í Tokyo, ef ekki sá stærsti.  Staðurinn skiptist í tvennt, loungesvæðið sem heitir Obi og svo klúbbinn sjálfan.  Þegar komið er inn fyrir miðasöluna eru raðir með skápum sem hægt er að leigja fyrir töskur og fatnað.  Vanalega kostar leigan 300 jen sem dugar þér til lokunar staðarins.

Staðurinn er með eitt dansgólf sem skartar stærstu diskókúlu í Tokyo.  Við dansgólfið er bar en svo eru tveir barir í viðbót á hæðunum tveim fyrir ofan dansgólfið.  Frá lounge-svæðunum við barina tvo er hægt svo að líta yfir dansgólfið í smá næði frá pumpandi teknóinu.

Smella hér til að fá lista yfir hverjir eru að spila í þessum mánuði.

Teknósnúðarnir Takkyu Ishino (úr teknópoppsveitinni Denki Groove) og Ken Ishii spila þar oft og Jeff Mills einnig en þegar hann kemur þá spilar hann jafnvel marga daga í röð.  Þrátt fyrir að vera þekktur helst sem teknó-klúbbur eru mánaðarleg drum'n'bass kvöld þar og oft house kvöld einnig.

Í takt við flesta aðra staði af þessari stærðargráðu kostar venjulega frá 2.500 - 4.000 jen (~1.400 - 2.200 kr.) inn á kvöld og fylgja oftast drykkjarmiðar með (1 eða 2).

Til að komast þangað geturðu stuðst við kort superfuture fyrir Shibuya hér (Womb er neðarlega til vinstri).

 

The Room

Einn af betri skemmtistöðum í Tokyo er staðsettur steinsnar frá Shibuya lestarstöðinni og heitir The Room.  Þetta er lítill staður og tekur eitthvað undir 100 manns.  Barinn er staðsettur í rétt 5 mínútna göngufjarlægð frá West Exit á Shibuya lestarstöðinni.

Þessi staður er oft dreginn upp þegar talað er um djass og "nu-jazz" tónlistarmenninguna í Japan.  Nu-jazz tónlistarmenn eins og Kyoto Jazz Massive, QuasimodeShuya Okino og fleiri eru með reglulega viðburði þar og oftast er tónlistin eitthvað viðriðin djass.  Hip-hop er líka spilað þar sem og house, diskó og stundum techno.  Hip-hop plötuútgáfan Jazzy Sport hefur haldið viðburði þarna sem og fræg plötubúð að nafni Universounds sem að DJ Shadow og Cut Chemist stunda þegar þeir stoppa í Japan en sú búð selur gamlan djass- og soul-vínyl.

Þessi staður er með einn af betri börum sem ég hef farið á.  Sem merki um það er ef þú pantar þér einhvern spírakokkteil færðu mjög líklega nær fullkomna klakakúlu í glasið sem barþjónninn mótar með meitli.  Verðin eru mjög sambærileg á öðrum klúbbum eða um 7-800 jen (~400 kr.) fyrir drykkinn.  Mæli sérstaklega með drykknum "Kyoto" sem er innanhúsdrykkur en hann inniheldur sake, lime safa og fjólubláan sítrónulíkjör.