Fljótlegt: August 2007 Archives
[Fljótlegt] Tenka Sushi
Tenka Sushi er keðja af sushi stöðum sem er með fjölmörg útibú í Tokyo. Mest heillandi við þessa staði er verðið sem er í ódýrari kantinum.
Þetta er kaiten sushi staður, eða "færibanda-súshí" (eins og sushi staðurinn á annarri hæð Iðu-hússins við Lækjargötu). Maður situr semsagt við langt hringlaga afgreiðsluborð með kokkana innanborðs og maturinn rúllar framhjá þér á færibandi. Diskarnir eru mismunandi litaðir og hver litur táknar ákveðið verð. Þegar þú hefur borðað fylli þína eru diskarnir (og glösin) talin saman og þú greiðir fyrir matinn í afgreiðslunni við hurðina.
Eins og á flestum japönskum veitingastöðum er grænt te (ocha) og vatn (o-mizu) frítt. Á borðinu er krani með heitu vatni fyrir teið en beðið er um vatnið og aðra drykki sérstaklega. Fyrir framan þig ætti að vera innplastaður matseðill svo að ef að þú sérð ekki hvað þig langar í á færibandinu pantar þú það frá starfsmanni.
Útibú þeirra í Shibuya er auðfundið, ef staðið er fyrir framan New South Exit lestarstöðvarinnar er haldið beint af augum út götuna, yfir litla brú að stórri götu. Þegar komið er að henni er beygt til vinstri og eftir nokkra tugi metra sést staðurinn á vinstri hönd.
[Fljótlegt] Yoshinoya
Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu. Mjög ljúffengur matur og jafnframt mjög ódýr en ein skál kostar frá 400 - 700 yen eftir stærð og gerð. Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina. Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.
Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við. Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill. Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.
[Fljótlegt] Ootoya

Ootoya er einn af bestu "fljótlegu" matsölustöðunum í Japan sem sérhæfa sig í japönskum heimamat. Þjónustan er góð og hröð, maturinn æði og svo er þetta allt saman mjög ódýrt í þokkabót. Þetta er mjög útbreidd keðja og hægt er að finna útibú í öllum helstu borgum Japan. Í Tokyo eru ótal staðir og oft er hægt að finna þá nálægt helstu lestarstöðvunum. Ef að það sést glitta í skiltið hér að neðan ertu nálægt.
Boðið er upp á "set" máltíðir sem innifela einn aðalrétt, hrísgrjón, mísó-súpu og smá skammt af súrsuðu grænmeti. Aðalréttirnir eru af ýmsum toga: tempura, katsudon, hambaagu, tekkadon og fleira. Ef þetta er of framandi eru þeir líka með mjög góða súrsætan kjúkling og svo eru þeir með rétti á matseðlinum sem breytast mánaðarlega svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.
Máltíðin kostar á bilinu 600 - 800 jen og á flestum stöðum er borgað fyrirfram fyrir matinn og svo er manni vísað til sætis. Te og vatn er innifalið í verði en gosdrykkir og kaffi eru seldar gegn vægu verði. Á sumum stöðum er "drink bar" fyrir sama verð og einn drykkur myndi kosta þig annars.
Þessir staðir eru vanalega við allar stærri lestarstöðvar svo best er bara að hafa augun opin á gangi um borgina. Sem dæmi um einn stað er staður í Shibuya í mjög stuttri göngufjarlægð frá East Exit. Ganga yfir gatnamótin í átt að Resona bankanum og þar aðeins lengra upp brekkuna er staður á 2. hæð á hægri hönd. Sjá kort hér.
[Fljótlegt] Ichiran Ramen
Ichiran er lítil keðja af ramen stöðum með rétt undir 20 útibú um gervallt Japan.
Það sem er í boði er tonkotsu tegundin er núðlum en það er tegund af súpu sem að núðlurnar baða sig í. Aðrar týpur eru til dæmis shoyu (soja), shio (salt) og miso (mísó). Tonkotsu soðið er að hluta til gert úr svínabeinum þannig að þetta hentar augljóslega ekki fyrir grænmetisætur. Meira um hinar ýmsu tegundir af japönskum ramen núðlum hér.
Staðurinn sker sig úr fyrir þær sakir að allir gestir fá einstaklingsbás og það er bannað tala hátt og hafa annan hávaða. Þitt verk er að einbeita þér að núðlunum þar til að matnum er lokið, án allra truflana.
Þegar komið er inn á staðinn er þar sjálfsali þar sem maður verður að kaupa sér matarmiða sem maður skiptir fyrir matinn. Bara einn hlutur er á matseðlinum en það er þeirra "patent" tonkotsu-núðlur. Hægt er svo að kaupa sér aukalega egg, auka núðlur, auka kjöt, bjór og fleira meðlæti.
Þegar komið er inn á staðinn er ljósatafla sem gefur til kynna hvaða sæti eru laus. Ef að það sést blátt tákn á töflunni þá er þar sæti laust. Takkarnir eru í tveimur röðum eftir því í hvaða sætaröð það er, á hægri eða vinstri gangi. Nb. stundum eru pör sem vilja sitja hlið við hlið á undan í röðinni og ef að stakt sæti losnar er ekki óalgengt að fólk hleypi manni fram fyrir sig.
Þegar þú hefur tekið þér sæti þá færðu réttan einskonar "tjekklista" þar sem þú getur hakað við hversu mikið af vorlauk, hvítlauk, chillisósu og svo framvegis á að vera í súpunni. Einnig geturðu valið hversu vel soðnar núðlurnar eiga að vera og svo framvegis. Þú munt mjög líklega fá eintak af tjekklistanum á japönsku en biddu starfsmanninn um leið um ensku útgáfuna með því að segja "eigo no menyu kudasai" eða einfaldlega "English menu, please".

Útibú þeirra í Shibuya er opið allan sólarhringinn og því mjög hentugt eftir dvöl á skemmtistöðum í hverfinu. Til að komast þangað frá Hachiko Exit lestarstöðvarinnar er farið inn götuna hægra megin við Starbucks hinum megin við stóru gatnamótin. Þar rétt áður en komið er að Tower Records er útibúið í kjallara þar sem veitingastaðurinn Matsuya er á fyrstu hæð (gult skilti).