Etsuzan Ramen er ramen staður sem er að finna í
Koenji við yfirbyggða verslunargötu í stuttri fjarlægð frá lestarstöðinni. Aðalsmerki staðarins er súpan þeirra sem er frekar sjaldgæf blanda af svínabeina- og fiskbeinasoði. Grunnverðið er 700 jen fyrir núðlurnar en svo er hægt að bæta við áleggjum svo sem harðsoðnu eggi, auka kjöti, vorlauk og svo framvegis.

Súpan er í þykkri kantinum og er þessi blanda af fisk og svínaafurðum mjög sérstök. Þeir sem að hafa óbeit á japönsku fiskibragði (eins og
dashi) ættu að fara eitthvert annað en fyrir þá sem vilja prufa eitthvað nýtt og óhefðbundið er þetta góður staður til að prufa.
Etsuzan Ramen
東京都杉並区高円寺南4-25-4Suginami-ku, Koenji-minami 4-25-4 (Kort)