September 2009 Archives

medicom1.jpg

Medicom Toy starfrækir búðina Project 1/6 í hverfinu Shibuya þar sem þeir selja ýmsar vínyl fígúrur sem að fyrirtækið framleiðir. Þeir hafa lengi verið þekktir sem framleiðendur hinna vinsælu Be@rbrick kalla en einnig framleiða þeir margar aðrar línur sem og smávegis af fatnaði.

medicom2.jpgÍ búðinni er hægt að versla flestar þær vörur sem þeir hafa á boðstólum og einnig eru af og til hlutir sem að eru eingöngu seldir í þessari búð.  Einnig er gott að kíkja þangað til að leita eftir tilkynningum og flyerum fyrir listasýningar sem eru í gangi hverju sinni.

Til að komast þangað er farið sömu leið og að klúbbnum Module en haldið áfram framhjá staðnum og út götuna í um 5 mínútur þar til búðin blasir við á hægri hönd.

Project 1/6
東京都渋谷区宇田川町37-10
Shibuya-ku, Utagawa-cho 37-10 (Kort)

kickslab1.jpg Fyrir áhugafólk um strigaskó er Harajuku einn af bestu stöðum í heimi að skoða sig um. Þar er að finna margar búðir svo sem þessa, Kicks Lab, sem að selja sjaldgæfa strigaskó frá öllum helstu merkjunum. Mest er um Nike og undirlínu þeirra Nike SB en annars er einnig hægt að finna skó frá Adidas, Vans, Puma, Supra og fleiri merkjum.

kickslab2.jpgVerðin eru á miklu reiki, allt frá 5.000 upp í 150.000 jen fyrir skóparið en dýrustu vörurnar eru þær sjaldgæfustu.  Fyrir þá sem hafa leitað lengi að Air Jordan skóparinu úr barnæsku gætu haft heppnina með sér hér. 

Til að komast þangað er farið út um Takeshita Street Exit á Harajuku lestarstöðinni og gengið niður alla Takeshita Street þar til komið er að stórri breiðgötu.  Þar er farið beint yfir götuna og beint af augum inn götuna við hliðina á búðinni Murasaki Sports.  Eftir stuttan spöl er tekin fyrsta vinstri beygja og gengið um 100 metra og þar er búðin á hægri hönd.  Athuga að á kortinu hér að neðan virðist þetta vera við breiðgötuna en þetta er í mjórri götu á bakvið.

Kicks Lab
東京都渋谷区神宮前4−32−5
Shibuya-ku, Jingu-mae 4-32-5 (Kort)