Tölvur og tækni: September 2007 Archives

Super Potato Akihabara

superpotato.jpgSuper Potato er ein besta búðin í Tokyo fyrir gamla tölvuleiki og leikjatengdan varning. Fyrir þá sem spiluðu mikið Nintendo eða hvaða leikjatölvu sem er í barnæsku er það hrein nauðsyn að kíkja þangað.

Verslunin selur flest allar gerðir leikjatölva (t.d. Nintendo, Sega, Neo-Geo) sem og leikina fyrir þær, allt frá þeim elstu upp í þá nýjustu.  Allt mögulegt er á boðstólum, allt frá einstaklega sjaldgæfum leikjum sem fara á mörg hundruð þúsund jen stykkið og einnig sjaldséðar leikjatölvur eins og Virtual Boy sem var misheppnuð vél frá Nintendo frá árinu 1995.

Til að komast þangað er farið út um Akihabara Exit á Akihabara lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni). Þegar komið er út um hliðið er farið út um útganginn til vinstri og farið svo til hægri beint af augum, út mjóa götu að aðalgötunni sem sker hverfið í tvennt. Þar hinum megin við götuna er Club Sega spilatækjasalur. Farið er yfir götuna og inn mjógötuna vinstra megin við Sega salinn og svo tekin fyrsta beygjan til hægri. Eftir tæpa mínútu sést byggingin á hægri hönd en búðin er á 3. og 4. hæð hússins en þeir reka einnig spilatækjasal á 5. hæð.

Super Potato Akihabara
東京都千代田区外神田1-11-2
Chiyoda-ku, Soto-Kanda 1-11-2 (Kort)

Sony Building

Eitt helsta leiðandi aflið í tæknigeiranum í Japan, Sony, er með sýningarsali og búðarrými í byggingu er nefnist Sony Building í Ginza hverfinu. Í þessari byggingu er hægt að sjá allt það nýjasta frá Sony og þar á meðal allskyns vörur sem ógerlegt er að fá í Evrópu.

Fyrstu hæðirnar kynna ýmsar vörur frá fyrirtækinu, allt frá sjónvörpum til róbota, og á efri hæðunum sem og í kjallaranum er hægt að versla ýmsar vörur frá þeim.  Gott er að hafa í huga að stundum styðja innlendar vörur þeirra það að setja valmyndir yfir á ensku og þá er ekki þörf að versla sérstaklega "overseas models".

Til að komast þangað er farið út um Exit B9 á Ginza Station sem liggur á Ginza, Marunouchi eða Hibiya Line og þar blasir byggingin beint við.

Sony Building
東京都中央区銀座5-3-1
Chuo-ku, Ginza 5-3-1 (Kort)

BIC Camera

Til eru nokkrar risakeðjur af raftækjaverslunum á Tokyo-svæðinu en Bic Camera er ein sú stærsta.  Búðirnar selja raftæki af öllum gerðum og útibú er hægt að finna í flestum af fjölförnustu stöðum Tokyo.  Í Shibuya eru til dæmis tvö útibú örstutt frá lestarstöðinni, annað við East Exit og hitt rétt hjá Hachiko Exit (sjá á íslenskuðu korti hér).  Báðar búðirnar eru á mörgum hæðum með allt það tæknidót sem hugurinn girnist.

Kostir Bic Camera eru gott vöruúrval og yfirleitt góð verð.  Þeir eru einnig með punktakerfi sem er mjög hentugt við stór innkaup.  Punktarnir eru mældir í prósentum af söluverði og hver punktur táknar eitt jen.  Best er að nota punktana í að kaupa önnur raftæki (t.d. að nota punkta af myndavélakaupum til að kaupa mp3 spilara) frekar en að eyða þeim í minniskort og töskur utan um raftækin þar sem að þeir hlutir eru mun dýrari þar en annars staðar (í búðum í raftækjahverfinu Akihabara til dæmis). 

Til þess að geta notast við punktakerfið hjá þeim er nauðsynlegt að gerast meðlimur í viðskiptaklúbb Bic Camera  en það tekur einungis örfáar mínútur að gera við afgreiðslukassann.

BIC Camera (Shibuya East Exit)
東京都渋谷区渋谷1-24-12
Shibuya-ku, Shibuya 1-24-12 (Kort)