Barir: September 2007 Archives
[Barir] Chandelier / Red Bar

Chandelier (eða Red Bar) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.
Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti. Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn. Ef kveikt er á lampanum fyrir utan hurðina er opið.
Einn aðalkosturinn við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (500 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.
Kort til að komast þangað finnurðu hér.
[Barir] Coins Bar 300
Í Shibuya eru margir barir en fáir eru jafn ódýrir og þessi. Coins Bar 300 er lítill bar staðsettur í recomura eða plötubúðahverfinu í Shibuya sem er rétt rúmlega 5 mínútna labb frá lestarstöðinni. Til að komast þangað er best að koma sér til Dance Music Records eða DMR og þar er þetta í kjallara (sjá kort fyrir DMR hér).
Eins og nafnið gefur örlítið til kynna geturðu keypt drykki fyrir klink, eða 300 yen. Einnig er hægt að fá einhverja létta rétti fyrir sama pening. Oft er mikið að gera þar og getur verið erfitt að fá sæti og því er best að mæta snemma og jafnvel hafa þetta fyrsta stað kvöldsins. Ef að ómögulegt reynist að komast að get ég mælt með izakaya sem er akkúrat við hliðina og minnir endilega að heitir Watami.