Ódýrt: September 2007 Archives
[Ódýrt] Elephant Cafe
Elephant Cafe er ágætis "asískur" veitingastaður staðsettur í Shibuya meðal annars. Staðurinn er mjög stór, og því auðvelt að fá borð og hann er einnig stutt frá lestarstöðinni. Verðin eru mjög svipuð og á svipuðum veitingastöðum eða um 2-3000 jen á manninn fyrir mat með drykkjum inniföldum.
Matseldin sem er á boðstólum er blanda af víetnömskum, taílenskum, kínverskum mat blandað með hinu og þessu frá öðrum löndum innan Asíu. Maturinn er prýðilegur en það sem heillar mest við staðinn eru innréttingarnar (þar á meðal risa Búddalíkneski inni á miðjum staðnum) og andrúmsloftið þar inni.
Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni, og svo yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks. Þaðan er farið meðfram götunni til vinstri, yfir næstu gatnamót og örlítið upp brekkuna (framhjá verslunarmiðstöðinni 109) en þar er staðurinn fljótlega á hægri hönd á 5. hæð.