Tónlist og DVD: September 2007 Archives
[Tónlist og DVD] Tower Records
Einn besti staðurinn til þess að versla tónlist er Tower Records í Shibuya. Aðalbúð þessarar keðju er staðsett í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Shibuya lestarstöðinni.
Verslunin er á mörgum hæðum og lítill klúbbur er í kjallaranum fyrir "in-store live". Allra vinsælasta músíkin er á fyrstu hæð en svo eru hæðunum skipt upp eftir tónlistartegundum og uppruna (Japan/"International"). Þeir eiga mikið úrval af músík, allt frá algengasta poppi í sjaldgæfustu tilraunatónlist. Einnig eru þeir með mikið úrval af DVD en þeir eru örlítið í dýrari kantinum.
Til að komast þangað ferðu út um Hachiko Exit og
labbar yfir Hachiko torgið sem blasir við og að gatnamótunum. Beint
fyrir framan þig ættirðu að sjá Starbucks en hægra megin við Starbucks
er gatan sem búðin er við. Farðu yfir gatnamótin hægra megin og haltu
áfram á beinni braut framhjá Seibu verslunarmiðstöðvunum og innan nokkurra mínútna ætti Tower Records að blasa við á hægri hönd.
[Tónlist og DVD] Dance Music Record
Dance Music Record er ein af eldri plötubúðum Tokyo borgar sem sérhæfir sig í danstónlist á vínyl. Búðin frekar stór á tveimur hæðum og er staðsett í jaðrinum á recomura ("plötubær") hverfinu í Shibuya. Jarðhæðin er undirlögð nýjum vínylútgáfum (hip hop/elektróník/djass og fleira) og smávegis af mixdiskum. Efri hæðinni er tileinkuð house og techno músík.
Í hverfinu nálægt DMR er nóg af plötubúðum enda er þar svokallað plötubúðahverfi. Gott er að rölta um í grenndinni en góðar plötubúðir eru meðal annars Guinness Records (sem Nujabes rekur) og Yellow Pop sem eru með alls kyns gamlan vínyl.
Til að komast þangað er hægt að styðjast við kort af heimasíðu DMR sem ég íslenskaði og hægt er að finna hér. Nb. að þar sem stendur "Löggan" stendur lítið hringlaga hús á horni sem er koban, eða lítil löggustöð.