Föt og skór: September 2007 Archives

UNIQLO

UNIQLO er smásölurisi á fatamarkaðnum í Japan og staðurinn til að fá ódýr og þægileg föt.  Fyrirtækið með mestu veltu og gróða af öllum japönsku fatakeðjunum og hefur verið í útbreiðslu til Bandaríkjanna og Evrópu.

Þrátt fyrir að selja ódýr föt eru gæðin líka til staðar og mætti líkja þessu við ódýrari útgáfu af American Apparel, þ.e. frekar látlaus föt á góðu verði.  Bolir eru frá 1.000 jenum, skyrtur og peysur frá 2.000 jenum og buxur frá 3.000 jenum.

UNIQLO hefur ótal útibú á landsvísu (um 800 verslanir) og er gott að muna eftir nafninu og lógóinu á vappi um borgina.  Hér er addressan á stóru útibúi þeirra í Prince Hotel byggingunni í Shinjuku stutt frá stöðinni.

UNIQLO (Shinjuku)
東京都新宿区歌舞伎町1-30-1
Shinjuku-ku, Kabuki-cho 1-30-1 (Kort)

graniph

Graniph er sniðug búð fyrir boli og aðrar léttar flíkur.  Þetta byrjaði sem voða lítið batterí sem einbeitti sér að því að gefa út boli með gæðahönnun en jafnframt ódýrt.  Eins og þetta er orðið núna reka þeir stóra netverslun sem og að vera með búðir, 51 stykki í Japan og sitthvora í Taipei og Singapore.

Hönnunin sem er prentuð á bolina er ýmist fengin frá starfsmönnum graniph eða úr samstarfsverkefnum með utanaðkomandi aðilum.  Einnig eru haldnar "design" keppnir á vegum graniph og fá sigurvegararnir bolina sína prentaða og dreift um allar búðir fyrirtækisins.

Skemmtilega við bolina þeirra að oft er notuð týpógrafía eða letur í hönnunina á bolina og geta þar oft leynst á milli smá engrish, eða "vitlaus" enska (sjá frekar hér).  Harajuku útibúið er að finna á mjög svo hentugu korti superfuture yfir tískuverslanir Harajuku sem má finna hér.

graniph (Harajuku)
東京都渋谷区神宮前3-23-5
Shibuya-ku, Jingu-mae 3-23-5 (Kort)