Hagnýtar upplýsingar: August 2007 Archives

Siðir og venjur

Eins og þú gerir þér eflaust grein fyrir er japönsk menning töluvert frábrugðin þeirri íslensku og þess vegna er mjög mikilvægt að kynna sér ýmsa siði og venjur þar í landi áður en lagt er í hann.  Eftirfarandi er (alls ekki tæmandi) listi yfir litla hluti sem er vert að athuga þegar maður er í Japan.

  • Lærðu japönsku.  Allavega "takk" (arigatou), "fyrirgefðu" (sumimasen) og aðra hagnýta frasa.  Sjá t.d. hér.
  • Hneigðu þig fyrir fólki en ekki um of.  Smá lestur um hneigingar hérna.  15 gráður er passlegt með hendur niður með hliðum.  Ekki að horfa niður í jörðina nema að þú sért að hneigja þig fyrir hefðarfólki og þá tekurðu alveg 30-35 gráður á þetta.
  • Ef þú ert í viðskiptaerindum eða bara til að "networka", taktu með þér glás af nafnspjöldum.  Mikil nafnspjaldamenning í Japan og það er alltaf gott að eiga nóg af spjöldum á sér.
  • Gefðu gjafir.  Ef þér er boðið í heimsókn eða ert að fara að hitta einhvern (nýjan) vin/kunningja er alltaf gott að taka með sér eitthvað lítið frá Íslandi.
  • Aldrei fara inn á skónnum í mátunarklefa í verslunum.  Aldrei.
  • Það er ekkert voðalega dannað að sturta sojasósu yfir hrísgrjónin þín.  Svipað og að kreista tómatsósu yfir allt hérna heima.
  • Sake er ekki drukkið sem skot jafnvel þótt að það sé borið fram í litlum (skotlegum) glösum.  Rétta leiðin til að drekka sake er í litlum sopum.
  • Ekki vera feimin við að biðja um hníf og gaffal ef að reynist erfitt að borða með prjónum.  Á japönsku biðurðu um hníf og gaffal svona: naifu to fooku kudasai.

Meira á leiðinni.

Lestarkerfið

Eitt það allra mikilvægasta sem maður getur gert til að undirbúa sig fyrir ferð til Tokyo er að læra á lestarkerfið.  Almenningssamgöngur eru mjög góðar í Japan og stundvísi er í hávegum höfð.  Helstu lestarlínur ganga á 2 - 10 mínútna fresti allan daginn en lestir ganga ekki á næturna milli 01:00 og 05:00, hvort sem það er yfir jörðu eða neðan. 

Tvö helstu lestarkerfin heita JR (Japan Rail), sem er yfir jörðu, og Tokyo Metro, sem er neðanjarðarkerfið.  Eins og reynslan var hjá mér meðan ég bjó úti að þá notaði ég JR mun meira en það stoppar á öllum helstu stöðum.

JR

Kort fyrir lestarlínur JR á stór-Tokyo svæðinu er hægt að finna hér (pdf).

Í JR kerfinu er ein hringlína sem tengir öll helstu hverfin.  Sú lína heitir Yamanote (græn) og er vert að kynna sér mjög vel.  Þessi lína stoppar meðal annars í Shinjuku, Shibuya, Harajuku (frægt tískubúðahverfi), Ikebukuro, Ueno, Akihabara (raftækjahverfið) og Ebisu, allt staðir sem gaman er að kíkja til.

Önnur sniðug er Chuo línan (appelsínugul) en hún gengur þvert á Yamanote línuna.  Með henni er hægt að stytta ferðalagið frá einum enda (Shinjuku) til hins í Yamanote hringnum (Tokyo Station).  Einnig er hægt að taka hana út úr miðbænum eins og t.d. til Kichijoji eða Koenji sem eru lífleg úthverfi með nóg af skemmtilegum kaffihúsum og "2nd hand" búðum.

Tokyo Metro

Kort af neðanjarðarkerfinu finnurðu hér.

Neðanjarðarkerfið er mjög hentugt þrátt fyrir að lestirnar ganga aðeins sjaldnar.  Oftast er þó ekki meira en 15 mínútna bið eftir lest.  Með þessu kerfi geturðu komist til Aoyama (tískubúðahverfi), Asakusa, Roppongi, Kōrakuen og fleiri athyglisverðra staða.

Helstu línurnar sem ég notaði mest eru Ginza (gul) og Hibiya (grá).  Með Ginza línunni kemst maður meðal annars til Asakusa (staður eins frægasta hof Japans, Senso-ji) og Aoyama (tísku-mega-hverfi).  Með Hibiya línunni kemstu meðal annars til Roppongi þar sem Roppongi Hills er til húsa og kös af veitinga- og skemmtistöðum.

Aðrar lestir

Fyrir aðrar lestir (önnur kerfi) á stór-Tokyo svæðinu er hægt að nálgast upplýsingar hér.