Jimmy's House
Í New York labbar maður fram hjá kínverskum matsölustað í þriðja hverju skrefi. Sjálfur er ég mikill aðdáandi kínverskar matargerðar og hef prufað marga staði hérna í New York. Enginn hefur þó náð að toppa Jimmy's House.
Staðurinn er aðallega Take-Away staður en hann tekur þó 6 manns í sæti ef maður vill staldra við. Aðal munurinn á þessum stað og öðrum sem ég hef borðað á er sá að maturinn hjá Jimmy's er miklu ferskari. Hann er ekki "brasaður" eins og kínverskur matur vill oft verða. Ég gæti borðað þar allar mínar máltíðir, alla daga vikunnar.
Hvar: 162 East 25th St, milli 3. avenue og Lexington [Sjá kort]
Sími: (212) 725-7888
Vefsíða: www.jimmyshouseny.com
- - - - -
Flokkar:
Fljótlegt