Forsíða : Verslanir : Föt og skór

Macy's - verslunarmiðstöð

Macy's er ein frægasta verslunarmiðstöð heims, þar sem hægt er að fá allskyns föt, skó, ilmvötn, veski, bikiní og fleira slíkt, flest í fínni kantinum, sem hentar vel fyrir vel stæða Íslendinga. Þetta er alls ekki "mall" í hefðbundnum skilningi orðsins, heldur "department store", nokkurra hæða risabygging með stórum deildum á hverri hæð.

Ferðalangar geta farið niðrí kjallara og gegn framvísun vegabréfs fá þeir kort sem veitir 11% afslátt og gildir í 30 daga. Það jafngildir því að borga engan söluskatt, og getur munað heilmiklu ef fólk er duglegt að versla.

Macy's leggur gríðarlega mikið í jólaskreytingar, og hver jól safnast múgur fyrir framan aðalgluggann sem snýr að Herald Square og bíður eftir að skreyting ársins sé afhjúpuð. Og svo klappa allir og fara inn að eyða jólagjafapening.

Hvar: Macy's er við Herald Square, liggur á milli 34. og 35. strætis, og alveg frá Broadway að 7. Avenue. [ kort ]
Hvernig: F-V-B-D lestirnar (appelsínugular) á 34. stræti / Herald Square, eða 1-2-3 lestirnar (rauðar) á 34. stræti og 7. Avenue

- - - - -

Flokkar: