Forsíða : Matur : Fljótlegt

Chipotle - mexíkóskt

Chipotle er góð mexíkósk keðja sem selur burritos, tacos og salöt. Staðirnir eru mjög hreinir og fínir, og af því að þetta er keðja þá er maturinn alltaf nákvæmlega eins = alltaf jafn góður.

Staðurinn er settur upp einsog flestir skyndibitastaðir, þar sem þú ferð bara í röð og pantar. Þó er þessi matur langt frá því að vera óhollur: ekkert djúpsteikt og ekkert majónes, heldur bara tortillur og taco-skeljar, kjöt (kjúklingur, nautakjöt, og svínakjöt), og svo baunir, hrísgrjón, salsa, grænmeti, ostur, sýrður rjómi, og guacamole. Vanalega eru burritoin og allur maturinn gríðarlega vel útilátinn, og oft færðu burrito sem er á stærð við nokkurra mánaða gamalt barn. Guacamóleið er líka mjög gott, og alltaf ferskt.

Verðið fyrir burrito/taco og drykk er í kringum $10, og því miklu bragðbetri og hollari kostur en McDonald's eða Snickers.

Staðsetning: útum alla Manhattan [ sjá kort ]
Vefsíða: www.chipotle.com

- - - - -

Flokkar:

Flokkar