Forsíða : Verslanir : Tölvur og tækni

Best Buy - rafmagnsgræjur

Best Buy er staðsett á nokkrum stöðum á Manhattan. Þar er hægt að fá allt frá stafrænum myndavélum yfir í frystikistur, mjög svipað og BT Tölvur okkar Íslendinga (sem stálu líka útlitinu frá Best Buy).

Verslanirnar eru alls ekki hátízkulega hannaðar eða neitt slíkt, en bjóða oft fín verð og eru með mikið úrval. Fínn staður tilað kaupa harðan disk á tilboði, minniskort í myndavélina, eða tölvumús.

Hvar:
- Houston og Broadway (í SoHo) [ kort ]
- 23. stræti og 6. Avenue [ kort ]
- 44. stræti og 5. Avenue [ kort ]

- aðrar staðsetningar eru á vefsíðu Best Buy

- - - - -

Flokkar: