[Afþreying] Söfn
New York verður að teljast höfuðborg lista í Bandaríkjunum. Hér er að finna lista yfir þau söfn sem borgin hefur upp á að bjóða en á þeim lista er að finna nokkur söfn að þeirri stærðargráðu að það væri synd að skoða þau ekki.
[Fljótlegt] Jimmy's House
Í New York labbar maður fram hjá kínverskum matsölustað í þriðja hverju skrefi. Sjálfur er ég mikill aðdáandi kínverskar matargerðar og hef prufað marga staði hérna í New York. Enginn hefur þó náð að toppa Jimmy's House.
[Tölvur og tækni] Best Buy - rafmagnsgræjur
Best Buy er staðsett á nokkrum stöðum á Manhattan. Þar er hægt að fá allt frá stafrænum myndavélum yfir í frystikistur, mjög svipað og BT Tölvur okkar Íslendinga (sem stálu líka útlitinu frá Best Buy).
[Föt og skór] Macy's - verslunarmiðstöð
Macy's er ein frægasta verslunarmiðstöð heims, þar sem hægt er að fá allskyns föt, skó, ilmvötn, veski, bikiní og fleira slíkt, flest í fínni kantinum, sem hentar vel fyrir vel stæða Íslendinga. Þetta er alls ekki "mall" í hefðbundnum skilningi orðsins, heldur "department store", nokkurra hæða risabygging með stórum deildum á hverri hæð.
[Fljótlegt] Qdoba - mexíkóskt
Qdoba er keðja af mexíkóskum stöðum, og til viðbótar við "hefðbundin" burrito og taco er allskonar gott í boði einsog bbq-sósa, pestó, fetaostur og fleira gott. Það er reyndar bara einn þannig staður á Manhattan, en ef þú ert í nágrenninu er algjörlega þess virði að borða sig troðfullan þar.
[Fljótlegt] Burger Joint á Parker Meridien
Þessi unaðslega sveitta hamborgarabúlla er mun líklegri fyrirmynd að Hamborgarbúllu Tómasar en alnafninn á 21. stræti. Þessi staður er hálfgert leyndó enda er ekki margt sem gefur til kynna að þarna fáist ljúffengir borgarar: frá götunni er gengið inní fínt andyri Parker Meridien hótelsins og þar til vinstri, hálf-falið á milli veggja, glóir neon-hamborgarljósið og vísar manni veginn.
[Föt og skór] Beacon's Closet Store
Ef einhver vill taka sér smá pásu frá fínu og flottu búðunum á Manhattan og kíkja á góða búð með notuðum fötum þá er Beacon's Closet rétti staðurinn til að rúlla á.
[Tónleikar] Nokkrir tónleikastaðir
Það eru hundrað aðrir tónleikastaðir útum allt á Manhattan og í Brooklyn, sem langflestir selja miða í gegnum stærri miðasölurnar, einsog t.d. Ticketweb eða Live Nation, en hér er listi yfir tónleikastaði sem selja sjálfir miða:
[Tónleikar] Miðasölur
Hér eru helstu vefsíður sem selja miða á tónleika. Sumar eru betri en aðrar til að finna ákveðna atburði, en til að vera viss er betra að leita á þeim flestum.
[Fljótlegt] Chipotle - mexíkóskt
Chipotle er góð mexíkósk keðja sem selur burritos, tacos og salöt. Staðirnir eru mjög hreinir og fínir, og af því að þetta er keðja þá er maturinn alltaf nákvæmlega eins = alltaf jafn góður.