Forsíða : Verslanir : Föt og skór

Beacon's Closet Store

Ef einhver vill taka sér smá pásu frá fínu og flottu búðunum á Manhattan og kíkja á góða búð með notuðum fötum þá er Beacon's Closet rétti staðurinn til að rúlla á.

Beacon's Closet er á tveimur stöðum í Brooklyn:
- Rétt hinum megin við East River í Williamsburg - þangað er best er að taka L-lestina frá Union Square yfir á Bedford Avenue og labba þaðan. Ég mæli sterklega með því að kíkja á kort áður en maður leggur af stað þar sem ekki eru miklar líkur á því að maður rambi á búðina eftir að maður er kominn á Bedford Avenue.
- í Park Slope, sem er aðeins lengra frá Manhattan - best að taka M eða R lestina á Union Street og labba þaðan eins og eina blokk í austur (eins og það séu einhverjar líkur á því að maður viti hvað er austur þegar maður kemur upp úr lestinni).

Sjálfur hef ég farið í búðina í Williamsburg og gerði þar mjög góð kaup. Það er mikið af flottum fötum á lausu og til að mynda keypti ég fjórar skyrtur og eina peysu á samtals 5.000 íslenskar krónur. Fyrir þá sem hafa áhuga því að losa sig við eitthvað af fötum þá er um að gera að mæta með gömlu larfana og skipta þeim upp í föt sem þú hefur áhuga á eða bara jafnvel frá hreina seðla í veskið.

Staðsetning: Williamsburg og Park Slope.
Vefsíða: www.beaconscloset.com

- - - - -

Flokkar: