Forsíða : Matur : Fljótlegt

Burger Joint á 3. Avenue

Það fyrsta sem þú tekur eftir á Burger Joint eru hvað borgararnir eru litlir: svipaðir og litlu ostborgarnir hjá McDonalds. Burger Joint á ýmislegt sameiginlegt með Hamborgarabúllu Tómasar. Eigandinn er sjálfur að afgreiða á fullu en hann er "ítalskur-amerískur-robert de niro-persóna" sem talar mjög hátt og með miklum New York hreim. Hann getur orðið ansi æstur þegar mikið er að gera og við mælum með því að fólk láti það ekki fara í taugarnar á sér (við tölum af reynslu).

Með borgurunum er hægt að velja allskyns sósur, og tvær gerðir af frönskum kartöflum: venjulegar og svo franskar í ostasósu (sem er svipuð og nachos-ostasósa).

Staðurinn er frekar ódýr: tveir ostborgarar, franskar með ostasósu og kók voru um $7, sem er rétt undir 500 krónum.

Staðsetning: 241 3rd Ave, á milli 21. og 22. strætis [ sjá kort ]
Sími: (212) 228-1219

- - - - -

Flokkar:

Flokkar