August 2007 Archives

Þessi unaðslega sveitta hamborgarabúlla er mun líklegri fyrirmynd að Hamborgarbúllu Tómasar en alnafninn á 21. stræti. Þessi staður er hálfgert leyndó enda er ekki margt sem gefur til kynna að þarna fáist ljúffengir borgarar: frá götunni er gengið inní fínt andyri Parker Meridien hótelsins og þar til vinstri, hálf-falið á milli veggja, glóir neon-hamborgarljósið og vísar manni veginn.

Beacon's Closet Store

Ef einhver vill taka sér smá pásu frá fínu og flottu búðunum á Manhattan og kíkja á góða búð með notuðum fötum þá er Beacon's Closet rétti staðurinn til að rúlla á.

Það eru hundrað aðrir tónleikastaðir útum allt á Manhattan og í Brooklyn, sem langflestir selja miða í gegnum stærri miðasölurnar, einsog t.d. Ticketweb eða Live Nation, en hér er listi yfir tónleikastaði sem selja sjálfir miða:

Miðasölur

Hér eru helstu vefsíður sem selja miða á tónleika. Sumar eru betri en aðrar til að finna ákveðna atburði, en til að vera viss er betra að leita á þeim flestum.

Chipotle - mexíkóskt

Chipotle er góð mexíkósk keðja sem selur burritos, tacos og salöt. Staðirnir eru mjög hreinir og fínir, og af því að þetta er keðja þá er maturinn alltaf nákvæmlega eins = alltaf jafn góður.

Hverfi í Manhattan

→ Tímaritið New York lýsir helstu hverfum Manhattan, þar sem talað er um fasteignir, helstu veitingastaði, næturlíf, verslanagötur, og einnig eru fjölmargir tenglar á aðrar síður sem fjalla um viðeigandi hverfi.

New York Magazine: Neighborhoods

[ valmyndin er vinstra megin á síðunni, undir 'Neighborhoods' ]

Það fyrsta sem þú tekur eftir á Burger Joint eru hvað borgararnir eru litlir: svipaðir og litlu ostborgarnir hjá McDonalds. Burger Joint á ýmislegt sameiginlegt með Hamborgarabúllu Tómasar. Eigandinn er sjálfur að afgreiða á fullu en hann er "ítalskur-amerískur-robert de niro-persóna" sem talar mjög hátt og með miklum New York hreim. Hann getur orðið ansi æstur þegar mikið er að gera og við mælum með því að fólk láti það ekki fara í taugarnar á sér (við tölum af reynslu).