September 2007 Archives
[Tölvur og tækni] Best Buy - rafmagnsgræjur
Best Buy er staðsett á nokkrum stöðum á Manhattan. Þar er hægt að fá allt frá stafrænum myndavélum yfir í frystikistur, mjög svipað og BT Tölvur okkar Íslendinga (sem stálu líka útlitinu frá Best Buy).
[Föt og skór] Macy's - verslunarmiðstöð
Macy's er ein frægasta verslunarmiðstöð heims, þar sem hægt er að fá allskyns föt, skó, ilmvötn, veski, bikiní og fleira slíkt, flest í fínni kantinum, sem hentar vel fyrir vel stæða Íslendinga. Þetta er alls ekki "mall" í hefðbundnum skilningi orðsins, heldur "department store", nokkurra hæða risabygging með stórum deildum á hverri hæð.
[Fljótlegt] Qdoba - mexíkóskt
Qdoba er keðja af mexíkóskum stöðum, og til viðbótar við "hefðbundin" burrito og taco er allskonar gott í boði einsog bbq-sósa, pestó, fetaostur og fleira gott. Það er reyndar bara einn þannig staður á Manhattan, en ef þú ert í nágrenninu er algjörlega þess virði að borða sig troðfullan þar.