Fljótlegt: August 2007 Archives

Þessi unaðslega sveitta hamborgarabúlla er mun líklegri fyrirmynd að Hamborgarbúllu Tómasar en alnafninn á 21. stræti. Þessi staður er hálfgert leyndó enda er ekki margt sem gefur til kynna að þarna fáist ljúffengir borgarar: frá götunni er gengið inní fínt andyri Parker Meridien hótelsins og þar til vinstri, hálf-falið á milli veggja, glóir neon-hamborgarljósið og vísar manni veginn.

Chipotle - mexíkóskt

Chipotle er góð mexíkósk keðja sem selur burritos, tacos og salöt. Staðirnir eru mjög hreinir og fínir, og af því að þetta er keðja þá er maturinn alltaf nákvæmlega eins = alltaf jafn góður.

Það fyrsta sem þú tekur eftir á Burger Joint eru hvað borgararnir eru litlir: svipaðir og litlu ostborgarnir hjá McDonalds. Burger Joint á ýmislegt sameiginlegt með Hamborgarabúllu Tómasar. Eigandinn er sjálfur að afgreiða á fullu en hann er "ítalskur-amerískur-robert de niro-persóna" sem talar mjög hátt og með miklum New York hreim. Hann getur orðið ansi æstur þegar mikið er að gera og við mælum með því að fólk láti það ekki fara í taugarnar á sér (við tölum af reynslu).

Flokkar