Ég elska Tokyo
Air Tokyo
Air Tokyo er með betri klúbbum Tokyo og er staðsettur í Daikanyama, sem er í göngufjarlægð frá Shibuya.  Tónlistin sem er spiluð þar er öll afbrigði af house/techno og svo stundum hip hop og drum'n'bass.
Barinn á staðnum er alveg súper-góður, allt barfólkið er þaulæft og er það með betri eiginleikum staðarins.  Þegar maður er að borga 7-800 jen (~400 kr.) fyrir drykkinn (sem er svona örlítið í dýrari kantinum í Japan) að þá er alltaf gott að gæðin séu há.
Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér þar sem að þeir eru mjög strangir á skilríkjum.  Jafnframt taka þeir ekki debetkort gild sem skilríki svo að það er best að passa sig og taka vegabréfið með.
Til að komast þangað ferðu út um West Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar þaðan yfir göngubrúnna í áttina að lestarteinunum (vinstri beygja þegar þú kemur upp á brúnna).  Þegar komið er yfir götuna þarftu að labba mjóa götu meðfram lestarteinunum þar til þú kemur að klúbbnum á hægri hönd.  Kort með leiðinni má finna hér.
Super Potato Akihabara
Super Potato er ein besta búðin í Tokyo fyrir gamla tölvuleiki og leikjatengdan varning. Fyrir þá sem spiluðu mikið Nintendo eða hvaða leikjatölvu sem er í barnæsku er það hrein nauðsyn að kíkja þangað.
Verslunin selur allar gerðir leikjatölva (Nintendo, Sega, Neo-Geo, you-name-it..) og allt frá elstu upp í nýjustu leiki fyrir þær tölvur.  Ef það er eitthvað leikjatölvutengt frá hvaða tíma sem er finnurðu það þarna. Þeir eru með eintak af Virtual Boy leikjavélinni og gylltan Megaman 4 leik á 180.000 krónur íslenskar. Allt til semsagt.
Til að komast þangað þarftu að fara út um Akihabara Exit á Akihabara lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni). Þegar komið er út um hliðið labbarðu beint af augum og út mjóa götu að mjög breiðri aðalgötunni sem sker hverfið í tvennt. Þar hinum megin við götuna ættirðu að sjá Club Sega spilatækjasal. Labbaðu yfir götuna og farðu inn götuna hægra megin við Sega salinn og taktu svo fyrstu beygju til hægri. Svo labbarðu í smá stund og þá er þetta þér á hægri hönd (framhlið hússins lítur svona út) en búðin er á þriðju, fjórðu og fimmtu hæð hússins. Einnig er hægt að þekkja staðinn með því að hlusta eftir tölvuleikjamúsík sem að er spiluð úr hátalara utan á húsinu.
Blue Note Tokyo
Blue Note Tokyo er klúbbur og veitingastaður sem einhverjir ættu að kannast við en hann er nefndur eftir fræga djassplötufyrirtækinu Blue Note.
Chandelier / Red Bar
Chandelier (eða Red Bar) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.
Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti.  Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn.
Kostirnir við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (5-600 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.
Kort til að komast þangað finnurðu hér.
Elephant Cafe
Elephant Cafe er ansi fínn og alls ekkert svo dýr veitingastaður staðsettur í Shibuya, rétt hjá lestarstöðinni. Staðurinn er frekar stór og skartar risa-Búddalíkneski í miðju veitingasvæðinu, ásamt miklu af asísku dóti upp með öllum veggjum -- enda staður með Asíuþema.
The Daiso
Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta bombað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.
Mos Burger
First Kitchen
Sony Building
Yebisu bjórsafnið
Inni á safninu er að finna sögu Sapporo fyrirtækisins myndskreytta og ýmsan fróðleik um bruggunarferlið.  Með því athyglisverðara á safninu eru auglýsingarnar gegnum árin en þar sést hvernig aldagömul menning Japana blandaðist hægt og þétt við vestræn gildi yfir 20. öldina.
Í enda sýningarinnar er svo smökkunarherbergi þar sem maður getur bragðað allar helstu bjórtegundir fyrirtækisins og einnig rauðvín og hvítvín.  Eftir smakkið er gott að renna inn í minjagripaverslunina en hún er staðsett við innganginn.
Til að komast þangað er auðveldast að fara til Ebisu á JR Yamanote línunni.  Inni á lestarstöðinni er farið út um Yebisu Skywalk útganginn í átt að Yebisu Garden Place.  Þegar komið er út um útganginn ferðu yfir götuna og tekur létta vinstri beygju og labbar fram hjá verslunarmiðstöðinni sem blasir við en bjórsafnið er í húsinu við hliðina.  Húsið er merkt Sapporo en inngangur er í kjallara.  Gróf staðsetning hússins miðað við lestarstöðina sést hér.
BIC Camera
Góða við Bic Camera er gott vöruúrval og oftast eru góð verð þar.  Svo er einnig stór plús punktakerfið hjá þeim en þeir gefa punkta við stór innkaup sem gera þér kleift að nota punktana við næstu innkaup.  Punktarnir eru mældir í prósentum af söluverði og hver punktur táknar eitt jen.  Segjum sem dæmi að þú kaupir stafræna myndavél á 50.000 jen og þú fáir 15% punkta við kaupin.  Punktarnir breytast 7.500 jen sem þú getur hæglega eytt í að kaupa auka minniskort fyrir vélina.  Mjög sniðugt.
Til þess að geta notast við punktakerfið hjá þeim verðuru að gerast meðlimur í Bic Camera kúnnaklúbb en það er gert bara á nokkrum mínútum við diskinn.
Karaoke
Í stað þess að gera margar færslur um hina mismunandi karaoke staði sem er í boði verður þetta allt sameinað í eina færslu til hagræðingar.
Fyrst af öllu er vert að útskýra dálítið hvernig þetta fyrirbæri er í Japan.  Staðlaða formið af karaoke stað er karaoke box sem að mætti einna helst líkja við hótel, fremur en karaoke bar eins og við þekkjum af Ölver til dæmis.  Venjulegt karaoke box er oft á mörgum hæðum með allt frá 10 uppí 100 herbergi sem eru búin fullkomnum karaoke græjum, ljósagræjum (blacklight og diskóljós) og innanhússíma (til að panta mat og drykk).
Vinsælustu keðjurnar af karaoke stöðum eru Shidax, Karaoke-kan (カラオケ館) og Utahiroba (歌広場).
Þegar komið er inn á staðinn labbarðu vanalega beint inn í móttökurými með afgreiðsluborði þar sem karaoke herbergið er pantað.  Fundið er herbergi sem passar fyrir fólksfjöldann og svo þarftu að ákveða hvort að eigi að vera innifalið "all you can drink" (á japönsku nomihoudai) eða ekki.  Svo er ákveðinn tíminn, minnst er hægt að taka hálftíma og lengst er hægt að kaupa "alla nóttina" en það er um 5 tímar.  Þegar búið er að ganga frá pöntuninni færðu míkrafóna og ert sendur uppá herbergið.  Svo er það bara að syngja og panta sér drykk.
Vélin sjálf sem spilar karaoke lögin er mjög líklega öll á japönsku, þar á meðal fjarstýringin.  Ekki örvænta þó, þegar þú hefur fundið þér lag sem þú vilt syngja (nb. "ensku" lögin eru oftast aftast í risamöppunum af lögum á borðinu) að þá seturðu inn númerið á laginu í fjarstýringuna og ýtir svo á græna takkann.  Rauði takkinn stoppar svo lagið ef þú ert búinn að fá nóg.
Ef að síminn hringir eftir einhvern tíma er það líklegast verið að tilkynna ykkur að tíminn sé að verða útrunninn.  Oftast er hringt tíu mínútum áður en tíminn rennur upp og látið vita.  Þá er jafnframt hægt að framlengja tímann, vilji menn gera það.  Þegar öllu er lokið er farið niður og aftur í móttökuna þar sem gert er upp.
Fyrrnefndar keðjur eru með útibú bókstaflega úti um allt og þess vegna gef ég ekki upp kort fyrir einn ákveðinn stað.  Þess í stað eru hér dæmi um ytra útlit staðanna svo þú þekkir staðina í sjón.
Shidax: (1, 2, 3)
Karaoke-kan: (1, 2, 3)
Utahiroba: (1, 2, 3)
Club Module
Kostnaðurinn er frá 2.000 jenum (~1.100 kr.) og allt upp í 4.000 jen (~2.200 kr.) ef að eitthvað voða sérstakt er að gerast og vanalega fylgir einn drykkur með miðanum.  Í þessu samhengi er vert að minnast á að það er ódýrara inn ef að þú kemur með flyerinn fyrir kvöldið með þér og þá eru vanalega 500 jen slegin af.  Hægt er að rekast á flyera fyrir alls kyns kvöld í Dance Music Record plötubúðinni og nærliggjandi búðum í plötubúðahverfinu.
Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni og haldið yfir götuna yfir stóru gatnamótin (þvert á gatnamótin í átt að Starbucks).  Þegar komið er yfir götuna er beygt til vinstri og haldið áfram eftir gangstéttinni.  Bráðum ætti 109 að blasa við (risa "department store") en bara halda ótrautt áfram meðfram sama göngustíg en hann tekur sveig og heldur upp götuna hægra megin við 109.  Halda áfram þar til gatan tvístrast, taka þá hægri beygju og eftir örstutt labb ætti Module að blasa við á hægri hönd.  Staðurinn er í kjallara en ljósaskilti er á jarðhæð til að vísa á staðinn.
Til viðbótar við þessa lýsingu er hægt að styðjast við kort af heimasíðu Club Module, íslenskað af mér, sem þú finnur hér.
UNIQLO
UNIQLO er smásölurisi á fatamarkaðnum í Japan og staðurinn til að fá ódýr og þægileg föt.  Fyrirtækið með mestu veltu og gróða af öllum fatakeðjum og hefur verið í útbreiðslu til Bandaríkjanna og Evrópu.  En nóg um það.
Þetta er búðin sem reddaði mér oft þegar ég var fátækur námsmaður í Tokyo.  Þrátt fyrir að vera ódýr eru gæðin líka til staðar og mætti líkja þessu við ódýrari útgáfu af American Apparel, þ.e. frekar látlaus föt á góðu verði.
Bolir geta verið frá 1.000 jenum (~550 kr.), skyrtur og peysur frá 2.000 jenum (~1.100 kr.) og buxur frá 3.000 jenum (~1.650 kr.).
Óþarfi er að gefa upp staðsetningar því að þú átt eflaust eftir að rekast á allaveganna eina búð á vappi um Tokyo en þar eru 99 af 703 útibúum á landsvísu.  Bara muna eftir nafninu og lógóinu.
graniph
Graniph er alveg últra-sniðug og góð búð fyrir boli og aðrar léttar flíkur.  Þetta byrjaði sem voða lítið batterí sem einbeitti sér að því að gefa út boli með gæðahönnun en jafnframt ódýrt.  Eins og þetta er orðið núna reka þeir stóra netverslun sem og að vera með búðir, 51 stykki í Japan og sitthvora í Taipei og Singapore.
Hönnunin sem er prentuð á bolina er ýmist fengin frá starfsmönnum graniph eða úr samstarfsverkefnum með utanaðkomandi aðilum.  Einnig eru haldnar "design" keppnir á vegum graniph og fá sigurvegararnir bolina sína prentaða og dreift um allar búðir fyrirtækisins.
Skemmtilegt er að minnast á að oft er notuð týpógrafía eða letur í hönnun á bolina og geta þar oft leynst á milli smá engrish, eða "vitlaus" enska (sjá frekar hér).
Harajuku útibúið er að finna á korti superfuture fyrir Harajuku sem má finna hér.