Forsíða :
Skemmtistaðir
:
Tónleikastaðir
Blue Note Tokyo
Blue Note Tokyo er klúbbur og veitingastaður sem einhverjir ættu að kannast við en hann er nefndur eftir fræga djassplötufyrirtækinu Blue Note.
Eins og nafnið gefur til kynna er þetta djassklúbbur og þar eru tónleikar nánast öll kvöld. Ef litið er á dagskrána er mikið um "fusion" djassara eins og Bob James, David Sanborn, Chick Corea og fleiri en einnig hafa spilað þar artistar eins og Angie Stone og Louie Vega.
Klúbburinn er staðsettur í Aoyama hverfinu í um 10 mínútna labb-fjarlægð frá Omote-sando lestarstöðinni. Best er að panta miða með að hringja í 03-5485-0088 (+81 3-5485-0088 utan Japan). Sjá kort til að komast þangað hér.
- - - - -