Halló

Ég elska útlönd er einskonar upplýsingasíða fyrir Íslendinga sem vilja skoða útlönd. Við erum Íslendingar sem hafa búið í borgum víðsvegar um heiminn, og viljum segja þér frá okkar uppáhalds stöðum.

Við skrifum um allt sem okkur finnst skipta máli, sama hvort það eru veitingastaðir, söfn, verslanir, tónleikastaðir, hótel og gistiheimili, en einnig um hvar er gaman að versla í matinn, best að kaupa lestarkort, sjónvörp, stígvél eða sinnep.

Upplýsingarnar nýtast vonandi jafnt þeim sem ætla að stoppa stutt og þeim sem vilja flytja á nýjan stað. Oft er erfitt að búa til ferðaplan sem inniheldur ekki alvinsælustu ferðamannastaðina, og þar viljum við hjálpa til.