Entries tagged with “verslanir” from Ég elska Tokyo

Dance Music Record

Dance Music Record er ein af eldri plötubúðum Tokyo borgar sem sérhæfir sig í danstónlist á vínyl.  Búðin frekar stór á tveimur hæðum og er staðsett í jaðrinum á recomura ("plötubær") hverfinu í Shibuya.  Jarðhæðin er undirlögð nýjum vínylútgáfum (hip hop/elektróník/djass og fleira) og smávegis af mixdiskum.  Efri hæðinni er tileinkuð house og techno músík.

Í hverfinu nálægt DMR er nóg af plötubúðum enda er þar svokallað plötubúðahverfi.  Gott er að rölta um í grenndinni en góðar plötubúðir eru meðal annars Guinness Records (sem Nujabes rekur) og Yellow Pop sem eru með alls kyns gamlan vínyl.

Til að komast þangað er hægt að styðjast við kort af heimasíðu DMR sem ég íslenskaði og hægt er að finna hér.  Nb. að þar sem stendur "Löggan" stendur lítið hringlaga hús á horni sem er koban, eða lítil löggustöð.

Dance Music Record
東京都渋谷区宇田川町36-2
Shibuya-ku, Utagawa-cho 36-2 (Kort)

A Bathing Ape

A Bathing Ape, eða Bape, er eitt þekktasta japanska fatamerkið bæði þar í landi og víðar.  Merkið var stofnað af Nigo, stílista og músíkant, í byrjun tíunda áratugarins.  Í byrjun var þetta pínulítið batterí í tískuhverfinu Harajuku en er núna orðið að alþjóðulegu fyrirbæri með verslanir í New York, Los Angeles, London og víða um Asíu.  Eftir auknar vinsældir fatalínunnar stækkaði Nigo við sig og bætti við lúxusbúðinni Bapexclusive, skóbúðinni Footsoldier, kvennamerkinu Apee, barnafötum undir merkinu Baby Milo, hárgreiðslustofunni Bape Cuts, kaffihúsinu Bape Café og fleira.

Fötin myndu flokkast undir "streetwear" en mikið af grafíkínni á fötunum sækir innblástur í Planet Of The Apes.  Til þess að skoða hvað er í boði er hægt að skoða heimasíðu Bape.

Aðalbúðin og jafnframt fyrsta búðin sem var opnuð er í Harajuku og er staðsett í götunni bakvið Omotesando Hills verslunarmiðstöðina um það bil fyrir miðju þeirrar byggingar.

A Bathing Ape (Harajuku)
東京都渋谷区神宮前4-21-5
Shibuya-ku, Jingu-mae 4-21-5 (Kort)