Entries tagged with “sony” from Ég elska Tokyo
[Tölvur og tækni] Sony Building
Eitt helsta leiðandi aflið í tæknigeiranum í Japan, Sony, er með sýningarsali og búðarrými í byggingu er nefnist Sony Building í Ginza hverfinu. Í þessari byggingu er hægt að sjá allt það nýjasta frá Sony og þar á meðal allskyns vörur sem ógerlegt er að fá í Evrópu.
Fyrstu hæðirnar kynna ýmsar vörur frá fyrirtækinu, allt frá sjónvörpum til róbota, og á efri hæðunum sem og í kjallaranum er hægt að versla ýmsar vörur frá þeim. Gott er að hafa í huga að stundum styðja innlendar vörur þeirra það að setja valmyndir yfir á ensku og þá er ekki þörf að versla sérstaklega "overseas models".
Til að komast þangað er farið út um Exit B9 á Ginza Station sem liggur á Ginza, Marunouchi eða Hibiya Line og þar blasir byggingin beint við.

Lesa Sony Building