Entries tagged with “shinjuku” from Ég elska Tokyo
[Fljótlegt] Nakamoto Ramen
Fyrir ótrúlega góðar núðlur, sem eru örlítið í sterkari kantinum, er Nakamoto málið. Þetta er lítil keðja, aðeins með 8 útibú sem eru dreifð um stór-Tokyo svæðið. Ramen-ið sem þeir sérhæfa sig í er miso ramen sem þýðir að aðalhráefnið í núðlusúpunni er miso. Galdurinn við þeirra útgáfu er að þeir blanda miso-ið við sterkt chilli sem að umturnar bragðinu svo að súpan bragðast lítið sem ekkert eins og miso.
Allir réttirnir á matseðlinum eru flokkaðir eftir styrkleika, allt frá einum loga upp í fimm loga. Fyrir þá sem að sem að finnst mátulega sterkur matur góður (t.d. indverskur) er gott að byrja á tveimur. Fyrir þá sem eru ekki mikið fyrir sterkan mat er einnig hægt að fá ramen sem að er ekki sterkt. Í hverjum mánuði kynna þeir nýjan rétt sem þeir framreiða í takmarkaðan tíma og er einnig vert að skoða þá. Sem dæmi má sjá á myndinni að ofan rétt sem þeir voru með sumarið 2008 þar sem súpan var bragðbætt með tómat allt toppað með steiktu grænmeti.Þessi staður eins og svo margir aðrir nota matarmiða sem þýðir að þú setur pening í sjálfsala, velur það sem þú vilt, færð svo miða með pöntuninni og afganginn. Miðann læturðu starfsmanninn fá og hann færir þér það sem þú pantaðir. Einnig er vert að minnast á að þessi staður er einstaklega vinsæll og oft er hálftíma til klukkutíma bið eftir sæti. Til að forðast bið er best að fara um eftirmiðdaginn eða seint á kvöldin.
Hentugasta útibúið (og það sem er auðveldast að finna) er í Shinjuku en það er í undir 10 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Hér er íslenskað kort til að komast þangað og svona lítur staðurinn út (nb. hann er í kjallara og ekki sá sami og á myndinni hér að ofan).
[Fljótlegt] First Kitchen
First Kitchen er ein af frægari skyndibitakeðjunum í Japan sem er japönsk að uppruna. Þeir bjóða upp á nokkrar tegundir af hamborgurum en eru einnig með pasta, pizzur og aðra hluti á boðstólum. Matseðill þeirra breytist eftir árstíðum og oft er hægt að fá sérkennilegan japanskan, en mjög ljúffengan, skyndibita þar.Verðið er afar hefðbundið eða um 600-700 jen fyrir máltíð með drykk og frönskum inniföldum. Útibúin eru mörg talsins en helst er að minnast á Shinjuku útibúið sem að er í stuttri vegalengd frá South Exit lestarstöðvarinnar. Farið er út um South Exit, beygt til hægri um leið og labbað meðfram lestarstöðinni niður að næstu gatnamótum þar sem First Kitchen er hinum megin við götuna á horninu.
Lesa First Kitchen
[Föt og skór] UNIQLO
UNIQLO er smásölurisi á fatamarkaðnum í Japan og staðurinn til að fá ódýr og þægileg föt. Fyrirtækið með mestu veltu og gróða af öllum japönsku fatakeðjunum og hefur verið í útbreiðslu til Bandaríkjanna og Evrópu.
Þrátt fyrir að selja ódýr föt eru gæðin líka til staðar og mætti líkja þessu við ódýrari útgáfu af American Apparel, þ.e. frekar látlaus föt á góðu verði. Bolir eru frá 1.000 jenum, skyrtur og peysur frá 2.000 jenum og buxur frá 3.000 jenum.
UNIQLO hefur ótal útibú á landsvísu (um 800 verslanir) og er gott að muna eftir nafninu og lógóinu á vappi um borgina. Hér er addressan á stóru útibúi þeirra í Prince Hotel byggingunni í Shinjuku stutt frá stöðinni.