Entries tagged with “shibuya” from Ég elska Tokyo

medicom1.jpg

Medicom Toy starfrækir búðina Project 1/6 í hverfinu Shibuya þar sem þeir selja ýmsar vínyl fígúrur sem að fyrirtækið framleiðir. Þeir hafa lengi verið þekktir sem framleiðendur hinna vinsælu Be@rbrick kalla en einnig framleiða þeir margar aðrar línur sem og smávegis af fatnaði.

medicom2.jpgÍ búðinni er hægt að versla flestar þær vörur sem þeir hafa á boðstólum og einnig eru af og til hlutir sem að eru eingöngu seldir í þessari búð.  Einnig er gott að kíkja þangað til að leita eftir tilkynningum og flyerum fyrir listasýningar sem eru í gangi hverju sinni.

Til að komast þangað er farið sömu leið og að klúbbnum Module en haldið áfram framhjá staðnum og út götuna í um 5 mínútur þar til búðin blasir við á hægri hönd.

Project 1/6
東京都渋谷区宇田川町37-10
Shibuya-ku, Utagawa-cho 37-10 (Kort)

, Warszawa Records

warzawa1.jpg Ein af betri plötubúðum Tokyo borgar, Warszawa Records er búin að vera starfrækt í mörg ár og býður upp á allt það helsta í indie músík, teknó, house, dubstep og öðrum geirum.  Mikið úrval er af diskum en einnig eru þeir með heilmikið úrval af vínyl í hillunum meðfram veggjunum.  Verðin eru mjög sambærileg öðrum verslunum á svæðinu en helsti kosturinn við þessa búð er yfirgripsmikið úrval af neðanjarðarmúsík sem finnst oft ekki í stærri keðjunum.

warzawa2.jpg Á haustmánuðum 2008 setti verslunin upp kaffihús í sama húsnæði. Boðið er upp á góða létta rétti og eru þeir með einfaldan en góðan drykkjarmatseðil. Kaffi, te og gosdrykkir eru á bilinu 400-600 jen og réttirnir í kringum 1000 jen.  Þar sem þetta er einnig plötubúð er spiluð mjög fjölbreytt tónlist, allt frá minimal teknói til hip hops.

warzawa3.jpgHægt er að sitja upp við gluggann og fylgjast með mannmergðinni og er þetta tilvalið kaffihús til að slappa af eftir verslunar- eða skoðunarferð í Shibuya.  Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni og gengið yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks.  Þar er farið hægra megin við bygginguna og labbað meðfram Seibu verslunarmiðstöðinni og beygt næstu götu inni til vinstri.  Svo er gengið beinustu leið þar til gatan kvíslast, þar er farið hægri götuna nokkurra tugi metra þar til Warzawa Records birtist á þriðju hæð vinstra megin.  Á fyrstu hæð er kráin Kirin City.  Sjá betur á íslenskuðu korti hér.

Warszawa Records
東京都渋谷区宇田川町31-3第三田中ビル
Shibuya-ku, Utagawa-cho 31-3 (Kort)

Air Tokyo

airdaikanyama.jpg

Air Tokyo er með betri klúbbum Tokyo og er staðsettur í Daikanyama, sem er í göngufjarlægð frá Shibuya.  Tónlistin sem er spiluð þar er öll afbrigði af house/techno og svo stundum hip hop og drum'n'bass.

Barinn á staðnum er stórgóður, allt barfólkið þar er þaulæft og er það með betri eiginleikum staðarins.  Verðin á barnum eru örlítið í dýrari kantinum eða um 7-800 jen fyrir drykkinn en gæðin eru til staðar.

Mikilvægt er að taka vegabréfið með sér þar sem að þeir eru mjög strangir á skilríkjum.  Jafnframt taka þeir ekki debetkort gild sem skilríki svo að það er best að passa sig og taka vegabréfið með.

Til að komast þangað ferðu út um West Exit á Shibuya lestarstöðinni og labbar þaðan yfir göngubrúnna í áttina að lestarteinunum (vinstri beygja þegar þú kemur upp á brúnna).  Þegar komið er yfir götuna þarftu að labba mjóa götu meðfram lestarteinunum þar til þú kemur að klúbbnum á hægri hönd.  Kort með leiðinni má finna hér.

Air Tokyo
東京都渋谷区猿楽町2-11
Shibuya-ku, Sarugaku-cho 2-11 (Kort)

chandelier.jpg

Red Bar (eða Chandelier) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.

Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti.  Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn.  Ef kveikt er á lampanum fyrir utan hurðina er opið.

Einn aðalkosturinn við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (500 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.  Sérstaklega er hægt að fá góðan gin buck þarna en í honum er gin og kryddað og ósætt engiferöl.

Red Bar (Chandelier)
東京都渋谷区猿楽町2-11
Shibuya-ku, Sarugaku-cho 2-11 (Kort)

Elephant Cafe

Elephant Cafe er ágætis "asískur" veitingastaður staðsettur í Shibuya meðal annars.  Staðurinn er mjög stór, og því auðvelt að fá borð og hann er einnig stutt frá lestarstöðinni.  Verðin eru mjög svipuð og á svipuðum veitingastöðum eða um 2-3000 jen á manninn fyrir mat með drykkjum inniföldum.

Matseldin sem er á boðstólum er blanda af víetnömskum, taílenskum, kínverskum mat blandað með hinu og þessu frá öðrum löndum innan Asíu.  Maturinn er prýðilegur en það sem heillar mest við staðinn eru innréttingarnar (þar á meðal risa Búddalíkneski inni á miðjum staðnum) og andrúmsloftið þar inni.

Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni, og svo yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks.  Þaðan er farið meðfram götunni til vinstri, yfir næstu gatnamót og örlítið upp brekkuna (framhjá verslunarmiðstöðinni 109) en þar er staðurinn fljótlega á hægri hönd á 5. hæð.

Elephant Cafe
東京都渋谷区道玄坂2-29-5 ザ・プライム5F
Shibuya-ku, Dougenzaka 2-29-5 (Kort)

Club Module

Club Module er einn af betri techno og house klúbbum í Tokyo.  Mikið af spennandi techno viðburðum eru haldnir þar og erlendir plötusnúðar spila þar oft.  Til að skoða hvaða viðburðir eru á döfinni má sjá heimasíðu klúbbsins hér.

Miðaverð rokkar frá 2.000 - 4.000 jen en dýrara er ef að stór nöfn eru að spila það kvöldið.  Vanalega fylgir einn til tveir drykkir með hverjum miða.  Í þessu samhengi er vert að minnast á að það er ódýrara inn ef að þú kemur með flyerinn fyrir kvöldið með þér og þá eru vanalega 500 jen slegin af.  Hægt er að rekast á flyera fyrir alls kyns kvöld t.d. í Dance Music Record plötubúðinni og nærliggjandi búðum í plötubúðahverfinu.

Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni og haldið yfir götuna yfir stóru gatnamótin (þvert á gatnamótin í átt að Starbucks).  Þegar komið er yfir götuna er beygt til vinstri og haldið áfram eftir gangstéttinni.  Bráðum ætti 109 að blasa við (stór verslunarmiðstöð) en þá skal halda ótrautt áfram meðfram götunni hægra megin við 109. Eftir um 5 mínútna labb tvístrast gatan við Tokyu verslunarmiðstöðina og fara skal meðfram götunni hægra megin sem mjókkar töluvert.  Eftir örstutt labb ætti Module að blasa við á hægri hönd.  Staðurinn er í kjallara en ljósaskilti á jarðhæð vísa á staðinn.  Íslenskað kort er að finna hér.

Club Module
東京都渋谷区宇田川町34-6
Shibuya-ku, Utagawa-cho 34-6 (Kort)

Tower Records

Einn besti staðurinn til þess að versla tónlist er Tower Records í Shibuya.  Aðalbúð þessarar keðju er staðsett í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Shibuya lestarstöðinni.

Verslunin er á mörgum hæðum og lítill klúbbur er í kjallaranum fyrir "in-store live".  Allra vinsælasta músíkin er á fyrstu hæð en svo eru hæðunum skipt upp eftir tónlistartegundum og uppruna (Japan/"International").  Þeir eiga mikið úrval af músík, allt frá algengasta poppi í sjaldgæfustu tilraunatónlist.  Einnig eru þeir með mikið úrval af DVD en þeir eru örlítið í dýrari kantinum.

Til að komast þangað ferðu út um Hachiko Exit og labbar yfir Hachiko torgið sem blasir við og að gatnamótunum.  Beint fyrir framan þig ættirðu að sjá Starbucks en hægra megin við Starbucks er gatan sem búðin er við.  Farðu yfir gatnamótin hægra megin og haltu áfram á beinni braut framhjá Seibu verslunarmiðstöðvunum og innan nokkurra mínútna ætti Tower Records að blasa við á hægri hönd.

Tower Records
東京都渋谷区神南1-22-14
Shibuya-ku, Jinnan 1-22-14 (Kort)

Coins Bar 300

Í Shibuya eru margir barir en fáir eru jafn ódýrir og þessi.  Coins Bar 300 er lítill bar staðsettur í recomura eða plötubúðahverfinu í Shibuya sem er rétt rúmlega 5 mínútna labb frá lestarstöðinni.  Til að komast þangað er best að koma sér til Dance Music Records eða DMR og þar er þetta í kjallara (sjá kort fyrir DMR hér).

Eins og nafnið gefur örlítið til kynna geturðu keypt drykki fyrir klink, eða 300 yen.  Einnig er hægt að fá einhverja létta rétti fyrir sama pening.  Oft er mikið að gera þar og getur verið erfitt að fá sæti og því er best að mæta snemma og jafnvel hafa þetta fyrsta stað kvöldsins.

Coins Bar 300
東京都渋谷区宇田川町36-2 B1F
Shibuya-ku, Utagawa-cho 36-2 B1F (Kort)

Tenka Sushi

Tenka Sushi er keðja af sushi stöðum sem er með fjölmörg útibú í Tokyo.  Mest heillandi við þessa staði er verðið sem er í ódýrari kantinum.

Þetta er kaiten sushi staður, eða "færibanda-súshí" (eins og sushi staðurinn á annarri hæð Iðu-hússins við Lækjargötu).  Maður situr semsagt við langt hringlaga afgreiðsluborð með kokkana innanborðs og maturinn rúllar framhjá þér á færibandi.  Diskarnir eru mismunandi litaðir og hver litur táknar ákveðið verð.  Þegar þú hefur borðað fylli þína eru diskarnir (og glösin) talin saman og þú greiðir fyrir matinn í afgreiðslunni við hurðina.

Eins og á flestum japönskum veitingastöðum er grænt te (ocha) og vatn (o-mizu) frítt.  Á borðinu er krani með heitu vatni fyrir teið en beðið er um vatnið og aðra drykki sérstaklega.  Fyrir framan þig ætti að vera innplastaður matseðill svo að ef að þú sérð ekki hvað þig langar í á færibandinu pantar þú það frá starfsmanni. 

Útibú þeirra í Shibuya er auðfundið, ef staðið er fyrir framan New South Exit lestarstöðvarinnar er haldið beint af augum út götuna, yfir litla brú að stórri götu.  Þegar komið er að henni er beygt til vinstri og eftir nokkra tugi metra sést staðurinn á vinstri hönd.

Tenka Sushi (Shibuya)
東京都渋谷区渋谷3-17-4
Shibuya-ku, Shibuya 3-17-4 (Kort)

Womb

Womb er einn af stærstu teknó-klúbbunum í Tokyo, ef ekki sá stærsti.  Staðurinn skiptist í tvennt, loungesvæðið sem heitir Obi og svo klúbbinn sjálfan.  Þegar komið er inn fyrir miðasöluna eru raðir með skápum sem hægt er að leigja fyrir töskur og fatnað.  Vanalega kostar leigan 300 jen sem dugar þér til lokunar staðarins.

Staðurinn er með eitt dansgólf sem skartar stærstu diskókúlu í Tokyo.  Við dansgólfið er bar en svo eru tveir barir í viðbót á hæðunum tveim fyrir ofan dansgólfið.  Frá lounge-svæðunum við barina tvo er hægt svo að líta yfir dansgólfið í smá næði frá pumpandi teknóinu.  Í takt við flesta aðra staði af þessari stærðargráðu kostar venjulega frá 2.500 - 4.000 jen inn á kvöld og fylgja oftast 1-2 drykkjarmiðar með.

Smella hér til að fá lista yfir hverjir eru að spila í þessum mánuði.

Teknósnúðarnir Takkyu Ishino (úr teknópoppsveitinni Denki Groove) og Ken Ishii spila þar oft og Jeff Mills einnig en þegar hann kemur þá spilar hann jafnvel marga daga í röð.  Þrátt fyrir að vera þekktur helst sem teknó-klúbbur eru mánaðarleg drum'n'bass kvöld þar og oft house kvöld einnig.

Til að komast þangað geturðu stuðst við kort superfuture fyrir Shibuya hér (Womb er neðarlega til vinstri).

Womb
東京都渋谷区円山町2-16
Shibuya-ku, Maruyama-cho 2-16 (Kort)

Ootoya

otoya1.jpg

Ootoya er einn af bestu "fljótlegu" matsölustöðunum í Japan sem sérhæfa sig í japönskum heimamat.  Þjónustan er góð og hröð, maturinn æði og svo er þetta allt saman mjög ódýrt í þokkabót.  Þetta er mjög útbreidd keðja og hægt er að finna útibú í öllum helstu borgum Japan.  Í Tokyo eru ótal staðir og oft er hægt að finna þá nálægt helstu lestarstöðvunum.  Ef að það sést glitta í skiltið hér að neðan ertu nálægt.

Boðið er upp á "set" máltíðir sem innifela einn aðalrétt, hrísgrjón, mísó-súpu og smá skammt af súrsuðu grænmeti.  Aðalréttirnir eru af ýmsum toga: tempura, katsudon, hambaagu, tekkadon og fleira.  Ef þetta er of framandi eru þeir líka með mjög góða súrsætan kjúkling og svo eru þeir með rétti á matseðlinum sem breytast mánaðarlega svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

otoya2.jpg

Máltíðin kostar á bilinu 600 - 800 jen og á flestum stöðum er borgað fyrirfram fyrir matinn og svo er manni vísað til sætis.  Te og vatn er innifalið í verði en gosdrykkir og kaffi eru seldar gegn vægu verði.  Á sumum stöðum er "drink bar" fyrir sama verð og einn drykkur myndi kosta þig annars.

Þessir staðir eru vanalega við allar stærri lestarstöðvar svo best er bara að hafa augun opin á gangi um borgina.  Sem dæmi um einn stað er staður í Shibuya í mjög stuttri göngufjarlægð frá East Exit.  Ganga yfir gatnamótin í átt að Resona bankanum og þar aðeins lengra upp brekkuna er staður á 2. hæð á hægri hönd.  Sjá kort hér.

Ootoya (Shibuya East Exit)
東京都渋谷区渋谷2-20-11 2F
Shibuya-ku, Shibuya 2-20-11 2F (Kort)

The Room

The Room er einn af betri skemmtistöðum Tokyo en hann er staðsettur í stuttri vegalengd frá Shibuya lestarstöðinni.  Þetta er lítill staður og tekur eitthvað um 100 manns.


Þessi staður er oft dreginn upp þegar talað er um djass og "nu-jazz" tónlistarmenninguna í Japan.  Nu-jazz tónlistarmenn eins og Kyoto Jazz Massive, QuasimodeShuya Okino og fleiri eru með reglulega viðburði þar.  Hip-hop er líka spilað þar af og til, sem og house, diskó og stundum techno.  Hip-hop plötuútgáfan Jazzy Sport heldur einnig oft viðburði þarna.

Þessi staður er með einn af betri börum borgarinnar.  Sem merki um það færðu oft gerða fyrir þig fullkomna klakakúlu í glasið fyrir kokkteilinn þinn sem að barþjónninn mótar með meitli.  Verðin eru mjög sambærileg á öðrum klúbbum eða um 7-800 jen fyrir drykkinn.  Mæli sérstaklega með drykknum "Kyoto" sem er innanhúsdrykkur en hann inniheldur sake, lime safa og fjólubláan sítrónulíkjör.

The Room
東京都渋谷区桜丘町15-19 第八東都ビルB1
Shibuya-ku, Sakuraga-cho 15-19 B1F (Kort)

Ichiran Ramen

Ichiran er lítil keðja af ramen stöðum með rétt undir 20 útibú um gervallt Japan.

Það sem er í boði er tonkotsu tegundin er núðlum en það er tegund af súpu sem að núðlurnar baða sig í.  Aðrar týpur eru til dæmis shoyu (soja), shio (salt) og miso (mísó).  Tonkotsu soðið er að hluta til gert úr svínabeinum þannig að þetta hentar augljóslega ekki fyrir grænmetisætur.  Meira um hinar ýmsu tegundir af japönskum ramen núðlum hér.

Staðurinn sker sig úr fyrir þær sakir að allir gestir fá einstaklingsbás og það er bannað tala hátt og hafa annan hávaða.  Þitt verk er að einbeita þér að núðlunum þar til að matnum er lokið, án allra truflana. 

Þegar komið er inn á staðinn er þar sjálfsali þar sem maður verður að kaupa sér matarmiða sem maður skiptir fyrir matinn.  Bara einn hlutur er á matseðlinum en það er þeirra "patent" tonkotsu-núðlur.  Hægt er svo að kaupa sér aukalega egg, auka núðlur, auka kjöt, bjór og fleira meðlæti.

ichirantafla.jpg

Þegar komið er inn á staðinn er ljósatafla sem gefur til kynna hvaða sæti eru laus.  Ef að það sést blátt tákn á töflunni þá er þar sæti laust.  Takkarnir eru í tveimur röðum eftir því í hvaða sætaröð það er, á hægri eða vinstri gangi.  Nb. stundum eru pör sem vilja sitja hlið við hlið á undan í röðinni og ef að stakt sæti losnar er ekki óalgengt að fólk hleypi manni fram fyrir sig.

Þegar þú hefur tekið þér sæti þá færðu réttan einskonar "tjekklista" þar sem þú getur hakað við hversu mikið af vorlauk, hvítlauk, chillisósu og svo framvegis á að vera í súpunni.  Einnig geturðu valið hversu vel soðnar núðlurnar eiga að vera og svo framvegis.  Þú munt mjög líklega fá eintak af tjekklistanum á japönsku en biddu starfsmanninn um leið um ensku útgáfuna með því að segja "eigo no menyu kudasai" eða einfaldlega "English menu, please".

ichiran.jpg

Útibú þeirra í Shibuya er opið allan sólarhringinn og því mjög hentugt eftir dvöl á skemmtistöðum í hverfinu.  Til að komast þangað frá Hachiko Exit lestarstöðvarinnar er farið inn götuna hægra megin við Starbucks hinum megin við stóru gatnamótin.  Þar rétt áður en komið er að Tower Records er útibúið í kjallara þar sem veitingastaðurinn Matsuya er á fyrstu hæð (gult skilti).

Ichiran Ramen
東京都渋谷区神南1-22-7
Shibuya-ku, Jinnan 1-22-7 (Kort)