Entries tagged with “núðlur” from Ég elska Tokyo

Kohmen Ramen

kohmen1.jpg

Kohmen er afar vinsæll ramen núðlustaður með nokkur útibú dreifð um stór-Tokyo svæðið. Þeir framreiða allar vinsælustu tegundirnar af ramen (sjá hér) og einnig tan tan men.  Verðið er mjög svipað og á öðrum ramen stöðum í sama gæðaflokki eða 700-900 jen fyrir máltíðina.

kohmen2.jpg

Þegar komið er inn á staðinn tekur á móti þér þjónn sem vísar þér til sætis, ekki er þörf að kaupa matarmiða úr sjálfsala og gefa starfsmanni eins og á flestum svipuðum keðjum.  Matseðillinn er vel myndskreyttur svo auðvelt er að velja sér það sem lítur bragðgott út.  Þessi staður gerir allar þessar mismunandi tegundir af ramen núðlum mjög vel en fyrir þá sem finnst sterkur matur góður er tan tan men mjög bragðgott þar.

Auðveldast er að finna útibúið í Ikebukuro en til að komast þangað er farið út um Seibu East Exit á lestarstöðinni og beygt strax til hægri.  Þar er labbað beint meðfram Seibu verslunarmiðstöðinni, framhjá Starbucks og Illums en staðurinn er beint við hliðina á Illums á hægri hönd.

Kohmen Ramen
東京都豊島区南池袋1-18-22
Toshima-ku, Minami-Ikebukuro 1-18-22 (Kort)

Seibee Ramen

seibee1.jpg

Seibee er lítil keðja af ramen núðlustöðum með 2 útibú í Tokyo en annað þeirra er staðsett í Ueno.  Það sem er á boðstólum er miso ramen í mismunandi útfærslum og er þessi staður einn af betri stöðunum í Tokyo fyrir þessa tegund af ramen núðlum.

seibee2.jpgAðalsmerki staðarins eru þessir tveir réttir, annars vegar buta-miso (vinstra megin) þar sem í súpuna er bætt við steiktum baunaspírum og svínakjöti og hins vegar karanegi-miso (hægra megin) þar sem er bætt við sterkkrydduðum lauk og svínakjöti.

Staðurinn er staðsettur í sama hverfi og stóri almenningsgarðurinn Ueno Koen og er því tilvalið að kíkja á þennan stað eftir að skoða t.d. dýragarðinn og listasöfnin sem hægt er að finna í garðinum.

Til að komast á staðinn er farið út um Shinobazu Exit á Ueno lestarstöðinni og farið yfir götuna í átt til hægri.  Þar á horninu er risastór raftækjaverslun en farið er inn verslunargötuna vinstra megin við raftækjaverslunina og haldið áfram á beinni braut (gatan kvíslast einu sinni, þar halda beint áfram en ekki beygja) í um 5-10 mínútur þar til komið er að næstu stóru gatnamótum.  Þar er ekki farið yfir götuna en beygt upp til hægri og þar er Seibee Ramen um 50 metra upp götuna.  Sjá staðsetninguna hér.

Seibee Ramen
東京都台東区上野4-2-1
Taito-ku, Ueno 4-2-1 (Kort)

Nakamoto Ramen

nkmoto1.jpg Fyrir ótrúlega góðar núðlur, sem eru örlítið í sterkari kantinum, er Nakamoto málið.  Þetta er lítil keðja, aðeins með 8 útibú sem eru dreifð um stór-Tokyo svæðið.  Ramen-ið sem þeir sérhæfa sig í er miso ramen sem þýðir að aðalhráefnið í núðlusúpunni er miso.  Galdurinn við þeirra útgáfu er að þeir blanda miso-ið við sterkt chilli sem að umturnar bragðinu svo að súpan bragðast lítið sem ekkert eins og miso.

nkmoto2.jpgAllir réttirnir á matseðlinum eru flokkaðir eftir styrkleika, allt frá einum loga upp í fimm loga. Fyrir þá sem að sem að finnst mátulega sterkur matur góður (t.d. indverskur) er gott að byrja á tveimur. Fyrir þá sem eru ekki mikið fyrir sterkan mat er einnig hægt að fá ramen sem að er ekki sterkt. Í hverjum mánuði kynna þeir nýjan rétt sem þeir framreiða í takmarkaðan tíma og er einnig vert að skoða þá. Sem dæmi má sjá á myndinni að ofan rétt sem þeir voru með sumarið 2008 þar sem súpan var bragðbætt með tómat allt toppað með steiktu grænmeti.

Þessi staður eins og svo margir aðrir nota matarmiða sem þýðir að þú setur pening í sjálfsala, velur það sem þú vilt, færð svo miða með pöntuninni og afganginn.  Miðann læturðu starfsmanninn fá og hann færir þér það sem þú pantaðir.  Einnig er vert að minnast á að þessi staður er einstaklega vinsæll og oft er hálftíma til klukkutíma bið eftir sæti.  Til að forðast bið er best að fara um eftirmiðdaginn eða seint á kvöldin.

Hentugasta útibúið (og það sem er auðveldast að finna) er í Shinjuku en það er í undir 10 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Hér er íslenskað kort til að komast þangað og svona lítur staðurinn út (nb. hann er í kjallara og ekki sá sami og á myndinni hér að ofan).

Nakamoto Ramen
東京都新宿区西新宿7-8-11
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 7-8-11 (Kort)

Ichiran Ramen

Ichiran er lítil keðja af ramen stöðum með rétt undir 20 útibú um gervallt Japan.

Það sem er í boði er tonkotsu tegundin er núðlum en það er tegund af súpu sem að núðlurnar baða sig í.  Aðrar týpur eru til dæmis shoyu (soja), shio (salt) og miso (mísó).  Tonkotsu soðið er að hluta til gert úr svínabeinum þannig að þetta hentar augljóslega ekki fyrir grænmetisætur.  Meira um hinar ýmsu tegundir af japönskum ramen núðlum hér.

Staðurinn sker sig úr fyrir þær sakir að allir gestir fá einstaklingsbás og það er bannað tala hátt og hafa annan hávaða.  Þitt verk er að einbeita þér að núðlunum þar til að matnum er lokið, án allra truflana. 

Þegar komið er inn á staðinn er þar sjálfsali þar sem maður verður að kaupa sér matarmiða sem maður skiptir fyrir matinn.  Bara einn hlutur er á matseðlinum en það er þeirra "patent" tonkotsu-núðlur.  Hægt er svo að kaupa sér aukalega egg, auka núðlur, auka kjöt, bjór og fleira meðlæti.

ichirantafla.jpg

Þegar komið er inn á staðinn er ljósatafla sem gefur til kynna hvaða sæti eru laus.  Ef að það sést blátt tákn á töflunni þá er þar sæti laust.  Takkarnir eru í tveimur röðum eftir því í hvaða sætaröð það er, á hægri eða vinstri gangi.  Nb. stundum eru pör sem vilja sitja hlið við hlið á undan í röðinni og ef að stakt sæti losnar er ekki óalgengt að fólk hleypi manni fram fyrir sig.

Þegar þú hefur tekið þér sæti þá færðu réttan einskonar "tjekklista" þar sem þú getur hakað við hversu mikið af vorlauk, hvítlauk, chillisósu og svo framvegis á að vera í súpunni.  Einnig geturðu valið hversu vel soðnar núðlurnar eiga að vera og svo framvegis.  Þú munt mjög líklega fá eintak af tjekklistanum á japönsku en biddu starfsmanninn um leið um ensku útgáfuna með því að segja "eigo no menyu kudasai" eða einfaldlega "English menu, please".

ichiran.jpg

Útibú þeirra í Shibuya er opið allan sólarhringinn og því mjög hentugt eftir dvöl á skemmtistöðum í hverfinu.  Til að komast þangað frá Hachiko Exit lestarstöðvarinnar er farið inn götuna hægra megin við Starbucks hinum megin við stóru gatnamótin.  Þar rétt áður en komið er að Tower Records er útibúið í kjallara þar sem veitingastaðurinn Matsuya er á fyrstu hæð (gult skilti).

Ichiran Ramen
東京都渋谷区神南1-22-7
Shibuya-ku, Jinnan 1-22-7 (Kort)